Janúar
Þorra fagnað í Hafnarskóla
Þorra fagnað í Hafnarskóla
Þorra fagnað í Hafnarskóla (@Hafnarskóli)
Mynd 1 af 2
1 2

22.01.2007 Janúar

Þorra fagnað í Hafnarskóla

Strákarnir í Hafnarskóla buðu þorra í garð með því að hlaupa hér nokkra hringi í kringum skólann á öðrum fæti, berlæraðir og berfættir. Nokkrir drengir voru einungis á brókinni og létu það ekki aftra sér þó að frostið væri mikið. Þeir sem hlupu flesta hringi fóru 42 hringi í skóm og þeir sem komust næst því fóru 39. Flestir létu sér þó nægja að fara 3 hringi. Rétt fyrir hádegi ætlum við svo að hittast á sal og syngja saman þorralög og 4.H ætlar að vera með skemmtiatriði.


Í tilefni af þorra þá komu krakkarnir saman upp á sal og sungu saman nokkur þorralög. 4. bekkur H voru með skemmtiatriði og tókst þetta í alla staði mjög vel.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica