Janúar
Ari Þorsteinsson
Ari Þorsteinsson
Ari Þorsteinsson framkvæmdarstjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands.

24.01.2007 Janúar

Von á vatnsfjárfestum í næsta mánuði

Von er á fulltrúum þeirra aðila sem hafa hug á að kaupa vatn af Hornfirðingum núna í febrúar segir Ari Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands, við erum í viðræðum við þessa aðila og erum að svara fyrirspurnum um þessi mál. Þeir virðast hafa áhuga á þessu og ætla að koma og skoða ákveðna staði hér og möguleikana á að virkja vatnið til útflutnings og fá íslenskan jarðfræðing, sérhæfðan í vatnsmálum og jarðborun til liðs við sig. Þetta eru fjárfestar sem hafa tengsl við dreifingarfyrirtæki og eru að leita möguleika á vatnsnámi og ætla síðan að fá einhvern hóp fjárfesta með sér í verkefnið. Hvað varðar flutning á vatninu héðan til neytenda eru þeir að hugsa um tvo möguleika, annar er átöppun og hinn er að flytja vatn í tankskipi sem flytti það eitthvað suður á bóginn t.d. til arabalanda. Þessir fjárfestar vilja hafa starfsemina hér og aðstöðuna sem næst Höfn , einhversstaðar þar sem skip geta lagst að.

Ari segir að hugmyndin sé líka sú hvernig hægt er að tengja jökulinn við þetta því það myndi hjálpa mikið í markaðssetningunni, það er nú einu sinni svo að hún er dýrasti pósturinn í öllu málinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica