Mars
Ósinn farinn að selja pizzur að nýju.
Ósinn_IMG_7162
Gústi kokkur á Ósnum sveiflar pizzunni af sinni einstöku snilld.
Mynd 1 af 2
1 2

04.03.2007 Mars

Pizzasala hafin á Ósnum að nýju eftir brunann

Síðast liðinn föstudag hófst pizzusala á Ósnum en það er nú búið að taka eldhúsið í gegn sem slapp nánast við allar reykskemmdir og því er nú hægt að afgreiða þar pizzur. Að sögn Gísla Vilhjálmssonar eins eiganda Hótels Hafnar þá verður til að byrja með aðeins um heimsendingu að ræða því enn er verið að taka salinn á Ósnum í gegn. Enduruppbygging á Hótelinu er nú að hefjast eftir mikla og þrotlausa vinnu við hreinsun og reykræsingu eftir brunann sem varð á hótelinu í 7. febrúar s.l. Undanverið hafa eigendur verið að velja og kaupa inn ný húsgögn í Hótelið. Að sögn Gísla þá er stefnt er að því að opna hótelið í lok apríl að öllu óbreyttu.

Framkvæmdir við íbúðirnar við Víkurbraut sem hótelið keypti af Sveitarfélaginu ganga vel enda eru þær undir góðri og öruggri stjórn Birgis Árnasonar stórsmiðs. Stefnt að því að hægt verði að leiga þar út herbergi 1. júní n.k.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica