Mars
Fiðlarinn á þakinu
Fiðlarinn á þakinu
Fiðlarinn á þakinu

09.03.2007 Mars

UMF. Máni býður til afmælisveislu

Á morgun laugardaginn 10.mars kl.16.00 býður ungmennafélagið Máni til afmælisveislu í Mánagarði og eru allir sem vilja eiga góða stund saman og minnast 100 ára afmælis félagsins velkomnir. Við verðum þarna með svolitla dagskrá, ávörp og ræður segir Hjalti Egilsson, einnig verður danshópur Mána með dansatriði, Sveitalubbarnir spila nokkur lög einnig spila krakkar úr Tónskólanum. Síðan verða flutt söngatriði úr Fiðlaranum á þakinu sem sýndur hefur verið við fádæma hrifningu. Upphafsmaður að stofnun ungmennafélagsins var Bjarni Guðmundsson fyrrverandi kaupfélagsstjóri á Höfn . Bjarni hafði kynnst ungmennafélagshreyfingunni,sem þá var ný, þegar hann var í skóla á Akureyri 1905 og um vorið þegar hann kemur heim fær hann nokkra unga menn til liðs við sig og byrjuðu þeir á að stofna málfundarfélag. Þann 27. jan. 1907 var svo ungmennafélagið formlega stofnað og voru stofnendur þess þeir Bjarni Guðmundsson, Sigurður Arngrímsson, Þorbergur Þorleifsson og Gunnar Jónsson, stofnfélagar voru 20.

UMF Máni hefur starfað að mörgum málum gegn um tíðina og má þar nefna íþróttir, málfundafélög, leiklist og staðið fyrir byggingu félagsheimilis og íþróttaaðstöðu.

Á fyrstu árum Mána voru Höfn og Nes eitt sveitarfélag þ.e. Nesjahreppur, þar til 1946 að Nesjahreppi var skipt í tvö sveitarfélög og Hafnarhreppur stofnaður og áfram tilheyrði UMF Máni Nesjahreppi. Á þessum árum var sjálfstæðisbaráttan í fullum gangi og þá voru ættjarðarljóð sungin í upphafi og við lok hvers ungmennafélagsfundar og lögð var mikil áhersla á að varðveita íslenska málið.

Tveir af alvinsælustu leikurum UMF Mána, Hreinn Eiríksson og Þorleifur Hjaltason, eiga 60 ára leikafmæli á þessu ári og báðir tóku þeir þátt í sýningu Fiðlarans og var ekki að sjá nein þreytumerki á leik þeirra og vonandi eigum við eftir að sjá þá í mörgum leiksýningum og kvikmyndum í framtíðinni. Í tilefni afmælisins verður endurútgefið gamla sveitablaðið Vísir en það var gefið út í Nesjahreppi hér á árum áður.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica