Apríl
Kafbátuirnn á siglingu
Kafbátuirnn á siglingu
Kafbátuirnn á siglingu

01.04.2007 Apríl

Pólskur kafbátur í Hornafjarðarhöfn

Þrátt fyrir að starfsmenn Hornafjarðarhafnar hafa þurft að aðstoða hin ýmsu skip í gegnum innsiglinguna til hafnar þá hafa þeir ekki þurft að aðstoða kafbát fyrir en í morgun þegar pólski kafbáturinn Nováka změním kom til hafnar. Að sögn Sigfúsar Harðarsonar hafsögumanns þá var þetta óvenjuleg upplifun að fara um borð í kafbátinn fyrir utan Hornafjarðarós og sigla honum inn til hafnar. Um borð í kafbátnum 8 manna áhöfn og 23 ferðamann sem eru í hnattsiglingu með kafbátnum. Hornafjörður er viðkomustaður þeirra hér einn af mörgum á hnattsiglingu þeirra. Ferðina skipuleggur pólsk ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig að fara með ferðamenn í mjög sérstakar ferðir. Hornfirðingum gefst kostur á að skoða kafbátinn og fara um borð frá kl. 16-18 í dag og verður þar boðið upp á pólskar veitingar.

Kafbáturinn leggur úr höfn í kvöld á flóðinu sem verður um kl. 20.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica