Nýtt fyrirtæki með bátsferðir frá Óslandsbryggju og siglingu um fjörðinn
Í dag skrifuðu eigendur Fjöruferða ehf undir samning við Bæjarfélagið Hornafjörð um leyfi til ferða um Suðurfjörur og gildir samningurinn til ársins 2027. Fjöruferðir, fyrirtæki sem stendur fyrir afþreyingu og upplyftingu, var stofnað 16.febrúar sl. og eru eigendur þess Haukur Sveinbjörnsson og Elvar Örn Unnsteinsson á Höfn. Fjöruferðir verða, eins og nafnið bendir til, með skipulagðar bátsferðir frá Óslandsbryggju út á Melatanga og siglingu um fjörðinn eftir aðstæðum hverju sinni. Á Melatanga verður boðið upp á ferðir á fjórhjólum eftir merktum leiðum og frjálsar leiðir eru á fjörusandinum. Farið verður á fjórhjólum langleiðina út í Hvanney og gengið út í eyna og um hana og síðan farið til baka eftir sjávarsandinum. Þessi leið um fjörurnar og út í Hvanney er stórkostleg hvort sem er í blíðskaparveðri eða illviðri þegar brimið er í ham, eins er sérstök upplifun að fylgjast með skipaferðum um Hornafjarðarós.
Gamla bryggjan í Óslandi sem notuð var fyrir flugvöllinn þegar hann var á Melatanga hefur verið lagfærð og í næstu viku verður hús sett við bryggjuna þar sem öll afgreiðsla fyrir Fjöruferðir verður. Til að byrja með verða notuð til fjöruferða 4 Pioneer 13 bátar með stýrisbúnaði og tveir Zodiac bátar sem leiðsögumenn nota og á Melatanga verða 10 fjórhjól til leigu. Áætlað er að hver ferð taki um þrjár klst. Þeir sem vilja ganga um fjörurnar og út í Hvanney geta að sjálfsögðu fengið far yfir á Melatanga. Elvar mun sjá um leiðsögu á bátunum og í fjöruferðunum en Haukur verður landmaðurinn og sér um allar ,,reddingar´´ í landi.
Stefnt er á að allt verði tilbúið um miðjan maí og að þá hefjist ferðir á Suðurfjörur. Farið verður alla daga og eins er stefnt á að hægt verði að fara utan hefðbundins ferðatíma t.d.í sambandi við ráðstefnur og fundi en þá er gjarnan boðið upp á ferðir um nágrennið.
Starfsmenn verða fjórir.





Skrifa athugasemd