Apríl
Kviskerjarbradur
Kviskerjarbradur
Kvískerjabræður tóku á móti forsetahjónunum þegar þau komu í heimsókn á Kvísker í heimsókn þeirra til Hornafjarðar á síðasta ári. (úr myndasafni)

20.04.2007 Apríl

Afmæli Kvískerjabræðra

Í tilefni af afmælum Kvískerjabræðra, þeirra Sigurðar Björnssonar 90 ára 24. apríl, Helga Björnssonar 82ja ára 2. febrúar og Hálfdáns Björnssonar 80 ára 14. mars, ætla sveitungar og vinir að halda þeim kaffisamsæti í Hofgarði í Öræfum laugardaginn 21. apríl næstkomandi frá kl. 15 ? 18. Að ósk bræðranna eru gjafir afþakkaðar. Allir hjartanlega velkomnir. Á morgun laugardaginn 21.apríl ætla vinir og sveitungar Kvískerjabræðra, þeirra Sigurðar,Helga og Hálfdánar Björnssona, að halda þeim kaffisamsæti í Hofgarði í Öræfum frá kl.15-18. Þetta er gert í tilefni afmæla bræðranna en Sigurður verður 90 ára 24. apríl, Helgi varð 82ja ára 2.febr. og Hálfdán varð 80 ára 14. mars. Kvískerjabræður eru löngu þjóðkunnir fyrir fræðistörf og fyrir þau hafa Sigurður og Hálfdán hlotið Fálkaorðuna.

Sigurði var veitt Fálkaorðan fyrir sagnfræðistörf og rannsóknir en hann hefur sökkt sér niður í sögu héraðsins ekki síst Öræfanna og hann hefur skrifað fjölda greina í Skaftfelling gegn um árin. Hálfdán fékk Fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu náttúruvísinda, þar er hann jafnvígur í öllu sem við kemur náttúrunni. Helgi er mikill listasmiður og hefur hann t.d. gert skírnarfontinn í Hofskirkju í Öræfum.

Allir eru hjartanlega velkomnir í afmælishófið og að ósk bræðranna skal tekið fram að gjafir eru afþakkaðar.

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Halldóru í síma 478 1727, Pálínu í síma 478 1760 og Laufeyju í síma 478 1074.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica