Apríl
Þekkingarnet Austurlands
Þekkingarnet Austurlands
Hjalti Þór og Guðrún undirrita samning um aðstöðu í Nýheimum fyrir Þekkingarnet Austurlands
Mynd 1 af 3
1 2 3

21.04.2007 Apríl

Formleg opnun Þekkingarnets Austurlands í Nýheimum

Aðstaða Þekkingarnets Austurlands í Nýheimum var formlega opnuð þann 18. apríl og um leið var gengið frá samningi við Háskólann á Akureyri um fjarnám í hjúkrunarfræðum á Austurlandi. Þegar kannað var um áhuga fyrir slíku námi hér á Hornafirði og kom í ljós að margar konur höfðu áhuga á slíku námi og tilbúnar að nýta sér það gæfist þess kostur. Í framhaldi af þeirri könnun ákváðu stjórnendur Háskólans á Akureyri að bjóða upp á fjarnám í hjúkrunarfræðum á Hornafirði. Núna hafa 13 manns sótt um fjarnám í hjúkrunarfræðum og góðar líkur eru á að sá hópur verði fljótt fjölmennari. Það voru þau Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Guðrún Reykdal framkvæmdarstjóri Þekkingarnets Austurlands sem skrifuðu undir samning um leigu þekkingarnetsins á húsnæði í Nýheimum, einnig undirrituðu Guðrún Reykdal og Hermann Óskarsson deildarstjóri hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri samning um fjarnám í hjúkrunarfræðum.

Ragnhildur Jónsdóttir á Höfn er starfsmaður Þekkingarnets Austurlands á Hornafirði og var hún sérstaklega boðin velkomin til starfa.

Þessi samningur við Háskólann á Akureyri skiptir miklu máli fyrir íbúa Hornafjarðar og bætir menntunaraðstöðu þeirra í heimabyggð. Háskóli Íslands starfrækir rannsóknasetur á Hornafirði með aðsetur í Nýheimum. Með þessum nýjasta leigusamningi er húsnæði Nýheima nær fullnýtt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica