Apríl
Krían
Krían
Krían

21.04.2007 Apríl

Krían alveg að detta inn

Það er góð staða í fuglamálum hjá okkur segir Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands, allir farfuglar komnir nema krían, óðinshaninn og þórshaninn. ,,Krían er alveg að detta inn, gæti þess vegna komið núna um helgina en óðinshaninn og þórshaninn koma ekki fyrr en í maí, þeir eru alltaf langseinastir að koma. Hrafninn og álftirnar eru farin að verpa og líklega gæsin líka. Töluvert er komið af skúm en varp var lélegt hjá honum í fyrra og lítið komst upp af ungum. Við erum búnir að merkja á áttunda hundrað skógarþresti í vor en lítið af öðrum tegundum. Mjög lítið hefur verið um flækingsfugla á þessu vori og ekkert sést af sjaldgæfum fuglum og er þar um að kenna að lítið hefur verið um suðaustan átt, það vantar almennilega suðaustanátt´´.

Margir hafa velt því fyrir sér hvernig standi á því að þegar kríurnar fara úr Óslandinu síðsumars þá eru þær allt í einu farnar hver einasta kría og allt orðið hljótt þar sem daginn áður voru gargandi kríur út um allt varpsvæðið. Björn segir að hér í Óslandinu hverfi þær eins og dögg fyrir sól á miðju sumri en vestur við Jökulsárlón eru kríur fram í september.,, Ég tel að það sé ætið sem veldur þessu háttarlagi kríunnar því við lónið hefur hún nægjanlegt æti og þar var besta kríuvarpið sl. sumar og var talið að þar hafi verið 10-15 þúsund pör og má því ætla að fjöldi eggja hafi ekki verið undir 30 þúsundum´´. Varp í Óslandi í fyrra var með minna móti en ungar komust vel upp.

Þá er bara um að gera að horfa vel í Óslandinu og vera fyrstur að tilkynna um komu fyrstu kríunnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica