Apríl
Ferðafélagið_skór
Ferðafélagið_skór
Mynd úr ferð Ferðafélagsins þegar farið var Jeppa og gönguferð í Vöðlavík, Viðfjörð og Hellisfjörð.

26.04.2007 Apríl

Hvað þýða eiginlega þessir skór?

Þeir sem hafa velt fyrir sér hvað þessi skótákn sem notuð eru í bækling Ferðafélagsins þýða þá er hér skýring á þeim. Skótáknin eru notuð til að flokka gönguferðir í nokkur erfiðleikastig, til þess að þeir sem hyggjast taka þátt í ferðum geti metið hve erfiðar þær eru. Í Ferðaáætlun Ferðafélags Íslanda 2007 er þessar skýringar að finna. 1 skór eru léttar og stuttar dagleiðir (yfirleitt 4-6 klst.) Mest gengið á sléttlendi, léttur dagspoki, engar, eða litlar ár og flestum fært. 2 skór eru miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5-7 klst.) Oft í hæðóttu landi, bakpoki þarf ekki að vera þungur, engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun. 3 skór eru nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6-8 klst.) Oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld, gengið í fjallendi, getur þurft að vaða erfiðar ár og þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun. 4 skór eru erfiðar og langar dagleiðir (jafnvel yfir 10 klst.). Gengið í fjalllendi með allt á bakinu ? má búast með erfiðum ám ? aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.


Athugið að hér er aðeins um viðmiðun að ræða. Einstakar ferðir geta fallið undir fleiri en einn flokk og ófyrirsjáanlegar breytingar á ytri aðstæðum, t.d. veðri, geta breytt því hversu erfið ferð reynist vera.

Næsta ferð Ferðafélags A-Skaft er síðdegisganga sem verður farin í dag frá tjaldstæðinu kl. 18 (fimmtudaginn 26. apríl).
Gengið verður um Krossaland í Lóni.

Ferðin tekur um það bil 3 klukkustundir. (1 skór)

Sjáumst
Ferðanefndin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica