Undirrituðu þjónustusamning milli félagsmálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Í morgun undirrituðu Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri þjónustusamning milli félagsmálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Síðastliðin 10 ár hefur slíkur samningur verið í gildi á milli þessara aðila. Þjónustuþegar eru samtals 18 á aldrinum 7-72 ára. Á þessum tíu árum hefur þjónustuþegum fjölgað og öll þjónusta aukist til muna. Árið 1997 voru tveir starfsmenn í 1,2 stöðugildum en eru nú 12 í 5,5 stöðugildum í liðveislu, frekari liðveislu og dagvist. Dagvist fyrir fatlaða var opnuð í febrúar árið 2000. Árið 2006 fékkst styrkur úr Framkvæmdasjóði fatlaðra til að endurnýja 4 íbúðir í almennri íbúðarblokk. Þar af er ein íbúð ætluð fyrir skammtímavistun fyrir börn og fullorðna og sem skrifstofa fyrir starfsmenn og þrjár íbúðir eru leigðar út til fatlaðra.
Það er skoðun heimamanna að vel hafi tekist til með framkvæmd þjónustunnar á þessu 10 ára tímabili. Bæði hefur þetta orðið til að efla þjónustuna og færa hana nær notendum. Þjónusta við fatlaða er þannig samþætt annarri félagsþjónustu í sveitarfélaginu og sami aðili ber ábyrgð á allri þjónustunni. Gott samstarf er á milli félagsþjónustu sveitarfélagsins og Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, sem rekin er af sveitarfélaginu, um þjónustu við fatlaða og er af því ótvíræður ávinningur.
Nýr samningur mun gilda til loka ársins 2012. Það er staðföst trú heimamanna að áframhaldandi samstarf ríkis og sveitarfélags muni hér eftir sem hingað til reynast vel og að áfram verði unnið að uppbyggingu á þjónustu við þá sem hana þurfa að nýta.
Sjá einnig frétt og ávarp á vef Félagsmálaráðuneytis





Skrifa athugasemd