Apríl
Humarsúpa í Slysavarnahúsinu
Humarsúpa í Slysavarnahúsinu
Árni Mathísen fær góð ráð frá Snodda um kosningamálin.
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

30.04.2007 Apríl

Humarsúpa í Slysavarnahúsinu

Sjálfstæðismenn á Hornafirði buðu til hádegisverðar í Slysavarnahúsinu í gær þar sem boðið var uppá ljúffenga humarsúpu og nýbakað brauð. Meðal gesta þar voru ráðherrarnir Geir Haarde, Árni Mathísen ásamt frambjóðendunum Kjartani Ólafssyni og Unni Brá Konráðsdóttur en alls komu hátt í hundrað manns í súpuna. Að loknum hádegisverði hélt Geir Haarde á Hótel Höfn þar sem hann hafði boðað til fundar með heimamönnum. Að sögn Vignis Júlíussonar komu um 40 manns á fundinn og svaraði forsætisráðherra fyrirspurnum manna. Þarna voru rædd þau mál sem mest brenna á Hornfirðingum eins og göng undir Lónsheiði svo að hægt verði að loka stórhættulegum vegi um Hvalnes-og Þvottárskriður, Vegur yfir Hornafjarðarfljót , þverbraut á flugvöllinn og m.fl.

Kosningaskrifstofa sjálfstæðismanna í ,,Sjallanum´´ við Kirkjubraut verður opin frá kl. 17-21 og þegar nær dregur kosningardegi verður opnunartími lengdur svo um munar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica