Maí
Rjúpur
Rjúpur
Rjúpur (úr myndasafni)

02.05.2007 Maí

Fleiri rjúpur í Skaftafellsheiði

Í síðustu viku fór fram talning á rjúpum í Þjóðgarðinum Skaftafell. Ólafur Karl Níelsen fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnum ásamt Birni Arnarsyni hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands og Jóhann Þorsteinsson í Svínafelli gengu um Skaftafellsheiði og fundu 7 rjúpnapör og 3 kvenrjúpur. Þetta var aukning um 2 karra frá í fyrra sagði Björn, það er þannig að fyrst og fremst eru karrarnir taldir því þeir helga sér óðöl og ná sér í kvenfugl. Það segir því lítið að telja kvenfugl til að sjá út stöðu stofnsins. Við vorum ánægðir með þessa útkomu en hvort hún þíðir að fleiri fái rjúpur í jólamatinn í ár næst skal ósagt látið.

Þetta var í níunda sinn sem Ólafur Kark kemur í rjúpnatalningu í Skaftafellsheiði. Talning fer einnig fram í Kvískerjalandi og á alls um 60 stöðum á landinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica