Maí
Vignir Þorbjörnsson
Vignir Þorbjörnsson
Vignir Þorbjörnsson

02.05.2007 Maí

Flugfélagið Ernir með 100% stundvísi í komutímum til Hornafjarðar

Stundvísi hefur alltaf þótt mikill kostur og sýnir traust samskiptum. Í apríl sl. var Flugfélagið Ernir með 100 % stundvísi í komutímum áætlunarflugs til Hornafjarðar. Vignir Þorbjörnsson segir að þetta séu 30 vélar sem allar voru á réttum tíma, 29 vélar voru með fimm mínútna frávik flestar á undan og ein með 6-10 mín á eftir en áætlun telst allt að 15 mín frá ásettum tíma. Þetta kom okkur mjög á óvart og við höfum bara aldrei, öll okkar starfsár, séð svona, og það að hver einasta vél í mánuði skuli standast áætlun svona fullkomlega, það er hreint frábært og algjört met segir Vignir. Rétt er að benda á að hér er ekki í gangi eitthvert tímabundið átak heldur er hér um metnaðarfullt og ábyrgt flugfélag að ræða.

Nú eru fjórir mánuðir síðan Flugfélagið Ernir tóku við áætlunarfluginu til Hornafjarðar og á þessum tíma hefur flug aðeins tvisvar fallið niður vegna ófærðar þannig að tvo daga féll annað flugið niður.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica