Maí
Brúin yfir Hrafnagil
Brúin yfir Hrafnagil
Benedikt Steinþórsson brúarsmiður, ánægður með gott verk (@RagnarF]
Mynd 1 af 3
1 2 3

04.05.2007 Maí

Brúin yfir Hrafnagil komin á sinn stað

Viðgerð er lokið á brúnni yfir Morsá, sem kölluð hefur verið Rússarörið . Í stórrigningu í vetur gróf áin úr bökkunum við brúna sem þá færðist úr stað um nokkra metra. Helgi í Hjarðarnesi og Benedikt í Svínafelli hafa unnið að viðgerð brúarinnar og að koma henni á réttan stað. Lengja varð brúna um 17 m þannig að nú er hún orðin 64 m. löng og þar sem þetta er orðin stór og stæðileg brú þá höfum við ákveðið að leggja niður nafnið ,,Rússarör´´ og nota hennar rétta nafn ,,Brúin yfir Hrafnagil´´segir Ragnar Frank. Einnig hefur verið unnið að viðgerð á stóru brúnni (80 m.l.) við Grjóthól í Morsárdal. Ekki er hægt að komast yfir Morsárlón því brúin þar eyðilagðist fyrir tveim árum og ekki hefur komið fjárveiting til uppbyggingar á henni.

Þar sem brúin yfir Hrafnagil er komin á sinn stað er upplagt að skreppa í þjóðgarðinn og þá er tilvalin leið að fara frá bænum Hæðum, ganga inn heiðina inn í Morsárdal og yfir í Bæjarstaðaskóg út að útfallinu og síðan til baka um brúna yfir Hrafnagili. Þessi gönguleið er um 9 km. löng.

Mun fleiri hafa lagt leið sína í þjóðgarðinn í Skaftafelli í vetur og vor en áður og Ragnar segir mikið vera um að hópar komi. Unnið er að endurbótum á Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli og búið að semja við fagmenn í hinum og þessu fögum varðandi framkvæmdirnar og stefnt á að ljúka þeim áður en aðal ferðatíminn byrjar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica