Maí
Gugga að taka upp nýjar vörur
Gugga að taka upp nýjar vörur
Gugga að taka upp nýjar vörur
Mynd 2 af 3
1 2 3

09.05.2007 Maí

Verslun Dóru opnar nýja verslun

Verslun Dóru Hafnarbraut 34 verður opnuð fimmtudaginn 10.maí eftir miklar breytingar. Skipulagi í húsinu hefur verið breytt og nánast allt innréttað að nýju. Verslunin var færð um set í húsinu og verður mikið stærri og hin glæsilegasta. Sér pláss er fyrir hannyrðavörur, garn og lopa og er úrval þeirra vöru mun meira en áður. Í tilefni af opnun verslunarinnar þá verður gefinn 50% afsláttur á öllum sumarfötum frá Regatta. Sér inngangur er nú í verslunina en áður var sami inngangur í efnalaugina og verslunina. Í norðurenda hússins er salur sem verður leigður út, er núna kosningaskrifstofa, og eru líkur á að Handraðinn verði þar til húsa í sumar. Efnalaugin hefur einnig verið stækkuð og komin góð aðstaða fyrir allan frágang á þvotti.

Starfsemi í efnalauginni hefur vaxið með hverju árinu og í vor bætast við í viðskipti a.m.k. tvö hótel og ein ferðaþjónusta. Ég reikna með að í sumar þvoum við 800-1000 rúmföt á dag segir Dóra Ingólfsdóttir eigandi Efnalaugar og Verslunar Dóru, og eins hefur fatahreinsun aukist. Þeim þvotti sem kemur úr Vestur- Skaftafellssýslu er komið í Freysnes en þangað eru daglegar þvotta-ferðir yfir sumarið eins til annarra þjónustustaða á svæðinu. Í sumar verða a.m.k. sjö starfsmenn hjá Dóru í efnalauginni og versluninni og vildi Dóra koma því á framfæri að hún væri leita sér að starfsmanni til að vera hjá þeim í sumar og starfa við Efnalauginna og í útkeyrslu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica