Búinn að vera 40 ár í kjörstjórn
Árið 1967 tók Þorleifur Hjaltason í Hólum við sem formaður kjörstjórnar í Nesjum og hefur gengt því síðan eða í 40 ár. Segja má að formannsstarfið hafi gengið í ættir því Þorleifur tók við formannsstarfinu af föður sínum Hjalta hreppstjóra í Hólum sem tók við af Þorleifi hreppstjóra í Hólum, afa Þorleifs sem sinnt hafði því starfi frá 1889. Það kom venjulega í hlut hreppstjóra að vera formaður kjörstjórnar. Þorleifur segir að ekki hafi orðið miklar breytingar á formannsstarfinu hvað varðar tilhögun og framkvæmd frá því hann byrjaði, en stóri munurinn er að áður fyrr var þetta dálítið annað þegar bara var kosið um 3 eða 4 menn í framboði sinn fyrir hvern flokk. Þá þekktust ekki listakosningar og var bara kosinn einn maður fyrir Austur-Skaftafellssýslu til setu á þingi. Það var ekkert sambærilegt hvað það væri mikið betra fyrirkomulag en vera með alla þessa menn.
Sá sem var kosinn væri maður úr héraðinu væri miklu tengdari öllu hér en ekki maður sem er búsettur á stór Reykjavíkursvæðinu. Það má segja að við höfum engan alþingismann núna þrátt fyrir allan þennan mannfjölda sem verið er að kjósa um,
Árið 1908 voru var í fyrsta sinn leynileg kosning til alþingis og síðan hefur sama kjörfundarbókin verið notuð og er enn. Bókin er innsigluð og árituð af Sigurði Eggerts sem var sýslumaður í Skaftafellssýslum.
Sá næstelsti í kjörstjórnarembætti í sýslunni er Sigurgeir Jónsson á Fagurhólsmýri en hann hefur ekki alltaf verið formaður og var ekki alveg með það á hreinu hvað árin væru orðin mörg en að þau væru ekki eins mörg og hjá Þorleifi og bætti við ,,hvað heldurðu að maður sé að setja svona á sig ´´.
Öræfingar eru með sína kjörfundarbók frá 1908 og segir Sigurgeir að hún dugi í einhver ár enn.
Kjörfundarbækurnar eru einnig notaðar í forsetakosningum.





Skrifa athugasemd