Sumarið verður viðburðaríkt í íþróttasögu Austur-Skaftfellinga.
Ávarp bæjarstjóra -
Íþróttafélög á svæðinu standa fyrir fjölbreyttu starfi í sumar og iðkendur á þeirra vegum verða á ferð og flugi um landið. Þau eru sendiherrar samfélagsins og við verðum að hvetja þau áfram. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Höfn um verslunarmannahelgina. Í tengslum við það mót standa yfir gagngerar endurbætur á Sindravöllum og uppbygging mótókrossbrautar á Ægissíðu. Golfvöllurinn á Silfurnesinu hefur stækkað og breyst og sómir sér vel í hópi glæsilegustu golfvalla landsins. Á næstu misserum verður lokið við nýja sundlaugarbyggingu, reiðhöll og knattspyrnuhús. Þegar þessum framkvæmdum er lokið verður aðstaða hér á Hornafirði til fyrirmyndar og flóran í íþróttalífinu fjölskrúðug. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum sem komið hafa að málum fyrir vel unnin störf.
Gott íþróttastarf er einn mikilvægasti þátturinn í að skapa gott uppvaxtarumhverfi fyrir börn og unglinga. Í ár fögnum við nokkrum tímamótum. 110 ár eru liðin frá því að byggð hófst á Höfn og verður haldið upp á það með ýmsum hætti nú í sumar og fram eftir ári. U.M.F. Máni hefur minnst aldarafmæli félagsins með leiksýningu og fleiri viðburðum. Í haust verður haldið upp á 40 ára afmæli Skaftafellsþjóðgarðs sem hefur í gegnum tíðina gefið þjóðinni kost á að njóta útiveru innan um stórbrotið andslag í Öræfum. Sveitarfélagið okkar hefur þann höfuðkost að möguleikar eru góðir til útivistar og hreyfingar. Við eigum að grípa tækifærið og láta blóðið streyma um æðarnar. Það eflir andann, eykur kraft og einbeitingu.
Gleðilegt sumar !
Hjalti Þór Vignisson





Skrifa athugasemd