Júní
Strákar á fleka, tekið frá Júllatúni
Strákar á fleka við Júllatún, Úr myndasafni (@Óðinn)

15.06.2007 Júní

Íbúar Hornafjarðar almennt ánægðir með þjónustu sveitarfélagsins

Við gerð fjárhagsáætlunar árið 2007 var tekin ákvörðun um framkvæma skoðanakönnun meðal íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar til að gefa þeim tækifæri að tjá sig um ýmsar hliðar sveitarfélagsins. Samningar náðust við Capacent Gallup um framkvæmdina sem hefur gert kannanir um lífsgæði í öðrum sveitarfélögum með sambærilegum hætti. Það auðveldar samanburð við önnur sveitarfélög. Til viðbótar við staðlaðar spurningar frá Capacent var bætt við nokkrum spurningum sem taka á þáttum sem eru sérstakir fyrir samfélagið á Hornafirði.

Spurningakönnunin var framkvæmd 19. mars - 21. apríl. Þátttaka var góð og svarhlutfall um 55,8%. Niðurstöðurnar eru á margan hátt jákvæðar og til dæmis eru um 70% íbúa almennt jákvæðir gagnvart þjónustu sveitarfélagsins þegar á heildina á meðan 9% eru óánægðir. Um 21% eru hvorki ánægðir né óánægðir með þjónustuna. Niðurstöðurnar gefa þó til kynna að þörf er á úrbætum á ýmsum sviðum í starfsemi sveitarfélagsins. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar fyrir bæjarstjórn þann 14. júní og í framhaldinu mun könnunin fá umfjöllun í bæjarráði og í nefndarkerfi sveitarfélagsins.

Könnunin í heild sinni (pdf)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica