Júní
Heyskapur hafinn
Heyskapur hafinn
Heyskapur hafinn í Grænahrauni
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

15.06.2007 Júní

Heyskapur hafinn í Hornafirði

Heyskapur hófst í Grænahrauni í Nesjum í gær,13. júní og er það um hálfum mánuði fyrr en venja er. Spretta er góð þrátt fyrir að lítið hafi verið um vætu sl. mánuð. Vel lítur út með sprettu á korni og eins eru Grænahraunsbændur bjartsýnir á að kartöfluspretta verði góð. Við erum með rúml. 100 hektara tún og mest af því er orðið vel sprottið segir Valdimar Ingólfsson, einnig erum við með tæpa tíu hektara fyrir korn. Byrjað verður að hirða í rúllur á morgun og ef vel gengur ætti fyrri sláttur að vera búinn fyrir miðjan júlí. Við erum með 60 kýr og heilmargt af geldneyti og nýlega fæddust 8 kálfar á einni viku. Valdimar segir kúastofninn aukast ár frá ári og mjólkurframleiðslan sl. ár hafi verið tæpir 300 þúsund lítrar.

Félagsbú er í Grænahrauni sem bræðurnir Valþór og Valdimar Ingólfssynir fjölskyldur þeirra ásamt foreldrum þeirra þeim Ingólfi og Ingibjörgu reka

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica