40 aðilar hafa skráð sig fyrir hlut í Ríkis Vatnajökuls ehf
Níu umsóknir um starf framkvæmdastjóra Ríkis Vatnajökuls ehf hafa nú borist stjórn félagsins. Fjallað var um umsóknirnar á stjórnarfundi í dag, flestir umsækjendur hafa mikla reynslu á svið markaðsmála og ferðamála sem og háskólamenntun eins og krafist var í auglýsingu. Stjórn félagsins ætlar að fjalla betur um umsóknirnar, en ekki er hægt að segja til um hvenær eða hver verður ráðinn í starfið. Einnig var stjórnin ánægð með það hversu mikill áhugi er á félaginu en 40 aðilar hafa skráð sig fyrir hlut í félaginu. Enn geta einstaklingar og fyrirtæki keypt hlut í félaginu.
Stjórn félagsins hefur einnig skipt með sér verkum og er Kristín G Gestsdóttir stjórnarformaður, Ari Þorsteinsson ritari, Þorbjörg Arnórsdóttir, Halldór Birgisson og Sívar Árni Scheving meðstjórnendur. Félagið verður til húsa í Nýheimum.





Skrifa athugasemd