Júlí

Frjálsar á nýjum velli

Undirbúningur fyrir Unglingalandsmótið kominn á lokastig - 31.07.2007 Júlí

Eins og bæjarbúar sjá þá er undirbúningur fyrir Unglingalandsmótið kominn á lokastig. Bærinn orðinn fánum skrýddur, búið að reisa tjöld á svæðinu við íþróttavöllinn og hátíðarstemming ríkjandi. Börn og unglingar innan USÚ taka virkan þátt í mótinu og hafa yfir 100 keppendur af svæðinu skráð sig til keppni. Fimmtudaginn 2. ágúst kl. 17:00 verður fundur með öllum keppendum USÚ í Heppuskóla. Á þessum fundi verða afhent gögn sem fylgja mótinu og farið yfir tímaseðla, skráningar og fleira og því mikilvægt að allir keppendur eða foreldrar mæti. Þess má geta að keppendur á landsmótinu fá ýmsar gjafir frá styrktaraðilum mótsins en auk þess fá allir keppendur USÚ gefins vind og vatnshelda treyju sem ætlast er til að keppendur klæðist í skrúðgöngunni við setningu mótsins. Lesa meira
 
Tjaldborg UMFI

Kvöldvökur, hljómsveitir, glímukappar og Hornafjarðarmanni - 30.07.2007 Júlí

Undirbúningur fyrir 10.landsmót UMFI á Hornafirði gengur vel og er 1400 fermetrar samkomutjald risið á leirusvæðinu austan við Fiskhólinn. Meðal þeirra skemmtana sem verða í tjaldinu eru kvöldvökur, hljómsveitir spila, glímukappar takast á og þar verður Hornafjarðarmanni spilaður. Tjald-götustemning verður við göngustígana í miðbænum, þar verða allskonar veitingar á boðstólum ásamt upplýsingum og kynningu á staðnum einnig verður Þórbergssetur þar með kynningartjald. Valdimar Einarsson verkefnisstjóri UMFI segir að vel gangi að fá sjálfboðaliða til starfa við mótið þó sé nóg pláss fyrir fleiri. Lesa meira
 
Við smábátahöfnina

Sýningin um atvinnu, mannlíf og menningu í ríki Vatnajökuls - 27.07.2007 Júlí

Á Hornafirði er blómlegt atvinnu- og mannlíf og er það grunnur að sýningu sem fer fram í Nýheimum 2. til 6. ágúst n.k. og ber sýningin yfirskriftina Í ríki Vatnajökuls WOW! Sýningunni er skipt í þrjá megin þætti Atvinna – Mannlíf – Menning og verða settir upp básar þar sem gestir og gangandi geta nálgast upplýsingar, rætt við heimamenn yfir kaffibolla, hlýtt á kynningar í fyrirlestrarsal Nýheima og virt fyrir sér svipmyndir af mannlífinu hér á Hornafirði. Þessa sömu daga munu þátttakendur og gestir á Unglingalandsmóti UMFÍ dvelja hér á Hofn en dagskráin sem verður fræðandi og skemmtileg mun gefa mótsgestum tækifæri á að kynnast Hornafirði og íbúum sveitarfélagsins. Lesa meira
 
Hjalti Þór Vignisson

Mótvægisaðgerðir - 25.07.2007 Júlí

Á blogsíðu Hjalda Þórs Vignissonar bæjarstjóra ritar hann mjög áhugavert blogg um mótvægisaðgerðir og birtast skrif hans hér orðrétt: Það er töluvert áfall fyrir okkar byggðarlag að verða fyrir þeirri kvótaskerðingu sem við blasir eftir ákvörðun sjávarútvegsráðherra. Veltan minkar umtalsvert í samfélaginu en fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins vega þar vonandi á móti. Hornfirðingar lengi barist við mótvægisaðgerðir vegna byggðaþróunar. Á meðan margir hafa einblínt á ríkisvaldið og talað fyrir sértækum aðgerðum hafa Hornfirðingar ræktað garðinn sinn og haft það að leiðarljósi að hollur er heimafenginn baggi. Lesa meira
 
Bláber í Lóni

Nú blánar yfir berjamó - 25.07.2007 Júlí

Þá fer að styttast í að hægt verði að fara í berjamó alla vega til að ná í bláber því stutt er í að þau verði nothæf. Vefurinn hefur það eftir áreiðanlegum heimildum fróðra manna að góðar horfur eru á mikilli berjasprettu og að þau verði orðin nokkuð góð eftir ca.hálfan mánuð eða svo en þeir sem eru mjög bráðlátir gætu svo sem reynt fyrr. Lesa meira
 
Selurinn Óli

Nýtt aðsóknarmet við Jökulsárlón - 23.07.2007 Júlí

Aðsóknarmet var slegið við Jökulsárlón sl. þriðjudag en þá fóru 977 manns í siglingu um lónið, eldra metið var 930 manns. Mun fleiri hafa komið að Jökulsárlóni en áður og farþegum sem fara í siglingu fjölgar ár frá ári. Þetta hefur gengið ljómandi vel hjá okkur í sumar segir Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón, fínt veður og starfsfólkið frábært. Mikill smáís hefur verið á lóninu í sumar og það þarf að byrja á því á morgnana að ryðja siglingaleið fyrir stóru bátana og halda henni svo opinni allan daginn en það sjá strákarnir á gúmbátunum um að gera og standa sig rosalega vel í því. Lesa meira
 
Blómadrottningin

Blómadrottning heillaði menn upp úr skónum - 23.07.2007 Júlí

"Blessaður" sveitarstjórinn "lagði þilför undir fót" í síðustu viku og fór um borð í skemmtiferðaskipið Maasdam, í því skyni að auka á virðuleika ferðarinnar og til að tryggja að gott myndefni væri til staðar, tók hann með sér yngismeyna, Írisi Birgisdóttur, en hún starfar sem “blómadrottning” hjá Djúpavoghreppi og ennfremur við safnið í Löngubúð. Eins og myndin bera með sér var þetta skynsamleg ákvörðun og ekki skemmdi fyrir, að Íris var glæsilega klædd eins og sjá má í íslenzkum búningi ömmu sinnar, Guðrúnar Guðjónsdóttur (Rúnu í Hlíð). Ferðin var farin til að færa skipstjóranum á Maasdam litla gjöf til minningar um það að þarna var á ferð stærsta skip, sem hér hefur líklega sést og einnig að þetta er fyrsta koma skemmtiferðaskips í Berufjörð, sem undirbúin er á þann veg að heimamenn geti gert tímanlega ráðstafanir til að taka virðulega á móti gestum. Lesa meira
 
Skemmtiferðaskip á Djúpavogi

Skemmtiferðaskip, samstarfsverkefni Djúpavogs og Hornafjarðar - 18.07.2007 Júlí

Skemmtiferðaskipið Ms/ Maasdan kom til Djúpavogs í gærmorgun. Skipið lagði af stað frá Boston fyrir rúmri viku og sigldi til Reykjavíkur og þaðan til Djúpavogs. Farþegar með skipinu eru 1155 og 500 manna áhöfn.Að sögn Kristjáns Ingimarssonar á Djúpavogi hafa Sveitarfélögin Djúpivogur og Hornafjörður hafið samstarf með móttöku skemmtiferðaskipa sem þá kæmu til Djúpavogs og þaðan yrðu skipulagðar ferðir um bæði sveitarfélögin. Koma Maasadan í gær er fyrsta verkefnið í þessu samstarfi og fóru 138 manns suður að Jökulsárlóni, 112 fóru í siglingu með Papeyjarferjunni og Fjarðarferðum út í Papey og skoðuðu eyna, í jeppa-safari inn á Fossárdal fóru 100 manns og 32 fóru í fuglaskoðun, stutta gönguferð að vötnum í nágrenni Djúpavogs. Fjöldi farþega skoðaði söfnin í Löngubúð og gengu um bæinn sem skartaði sínu fagra landslagi í björtu og fallegu veðri. Lesa meira
 
Ráðagóðir unglingar

Ráðagóðir unglingar - 17.07.2007 Júlí

Hópur ungmenna frá Frakklandi er í heimsókn á Höfn núna og gistir í tjöldum sínum á tjaldsvæðinu við þjónustumiðstöðina. Eins og aðrir ferðamenn fóru þau í Nettó í Miðbæ og keyptu vistir fyrir 130 þúsund kr. en þá var eftir að koma þessu öllu inn á tjaldsvæðið því enginn hafði bíl til umráða , en þau voru ekki í vandræðum með að bjarga því, fengu nokkrar innkaupvagna í Nettó og keyrðu öllum varningnum inn á tjaldsvæði. Unglingarnir sögðu að gott væri að versla í Nettó og voru harðánægðir með viðtökurnar þar þó ekki hefði gengið vel að prútta við starfsfólkið þá fengu þau smá glaðning í kaupbæti og allir voru ánægðir. Þegar búið var að tæma vagnana hlupu nokkrir vaskir strákar með þá til baka og komu þeim til skila. Lesa meira
 
Pálmi með nýjar gullauga kartöflur

Nýjar Hornafjarðar-gullauga komnar í Nettó - 16.07.2007 Júlí

Nýjar Hornafjarðar-kartöflur voru komnar í Nettó fyrir helgina. Þetta er gullauga frá Seljavöllum og sennilega þær fyrstu nýuppteknu sem koma í sölu í sumar en nokkrir dagar eru síðan premía Þykkvabæjarkartöflur komu í búðir á höfuðborgarsvæðinu. Birna Jensdóttir á Seljavöllum segir að vökva þurfi kartöflugarðana þrisvar á dag til að vel spretti en þar er úðunarkerfi sem nær yfir 4 hektara í einu. Birna segir að vel líti út með kartöfluuppskeruna þrátt fyrir þurrkana í sumar. Pálmi Guðmundsson verslunarstjóri í Nettó sagði að það væri kærkomið að fá glænýjar gullauga-kartöflur, sem alltaf eru þær vinsælustu, og hvað þá núna þegar grillveislurnar standa sem hæst. Lesa meira
 
Laufey Helgadóttir

Allt frá hrútspungum og sviðasultu upp í stórsteikur - 16.07.2007 Júlí

Helmingi fleiri gestir komu á hótelið á Smyrlabjörgum fyrri helming júnímánaðar en í fyrra en seinni hluti mánaðarins var lakari. Fleiri ferðamenn komu yfir veturinn en áður en við þurfum að nýta apríl og maí betur segir Laufey Helgadóttir hótel og ferðaþjónustustjóri. Annars gengur þetta allt ljómandi vel og nú geta heimamenn , gestir og allir sem leið eiga hér um komið í hlaðborðin okkar. Hlaðborðin á Smyrlabjörgum eru víðfræg fyrir einstaklega góðan og fjölbreyttan mat og þar er allt frá hrútspungum og sviðasultu upp í stórsteikur. Laufey segir að vinsælasti maturinn hjá útlendingunum sé fiskur, 7-8 tegundir af nýjum fiski matreiddum á ýmsan hátt og það er óskaplega gaman að sjá hvað þeir eru ánægðir með þann mat sem þeir fá . Lesa meira
 
Flugfélagið Ernir

Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél - 16.07.2007 Júlí

Flugfélagið Ernir er að fá nýja flugvél í flota sinn og er von á henni til landsins í kvöld en hún mun lenda á Reykjavíkurflugvelli. Vélin er af gerðinni Jetstream 32 og verður hún notuð í áætlunarflug hingað til Hafnar og á Sauðárkrók ásamt því að fljúga leiguflug innanlands sem utan. Vélin er búin jafnþrýstibúnaði með auknum þægindum fyrir farþega og tekur hún 19 manns í sæti. Flugfélagið Ernir á fyrir eina samskonar 19 sæta Jetstream 32, tvær 9 sæta flugvélar og tvær minni vélar sem að mestu eru notaðar í útsýnisflug með erlenda ferðamenn. Góð nýting hefur verið í flug hingað til Hafnar en að sögn Vignis Þorbjörnssonar þá hafa aðeins fallið niður flug tvo daga frá áramótum vegna veðurs. Lesa meira
 
Vöðlavík, Viðfjörður og Hellisfjörður 2005

Næsta ferð Ferðafélagsins er jeppa- og gönguferð í Vopnafjörð - 10.07.2007 Júlí

Að venju er mikið um að vera hjá Ferðafélaginu og er næsta ferð þeirra um helgina 20.-22. júlí en það er hin árlega jeppa- og gönguferð sem að þessu sinni verður í Vopnafjörð. Þar verður m.a. skoðuð Hellisheiði-eystri, Kattardalur og Smjörvatnsheiði. Þeir sem vilja verður gefinn kostur á að fara gangandi af Smjörvatnsheiði um Lambadalsskarð niður að Refstað. Á laugardagskvöldinu verður grillað, farið í sund í Selárdalslaug og haft gaman eins og ávalt er í ferðum hjá félaginu. Verð er kr. 6000 fyrir fullorðna, 2000 fyrir 12-16 ára , frítt fyrir 0-11 ára. Innifalið í verði er gisting, tjaldstæði fyrir tvær nætur, grillveisla, fararstjórn, sund og kaffi á sunnudag. Þeir sem hafa hug á að fara í þessa ferð þurfa að skrá sig í ferðina í síðasta lagi miðvikudaginn 18. júlí. Lesa meira
 
Vestragil, Gamla rafstöðin í Skaftafelli

Bæjarráð hvetur ríkisvaldið til þess að flýta uppbyggingu Vatnjökulsþjóðgarðs - 09.07.2007 Júlí

Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar í morgun var lögð fram eftirfarandi bókun (9. júlí 2007) v/skerðingar þorskkvóta "Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna afleiðinga af hinni miklu kvótaskerðingu fyrir næsta fiskveiðiár. Skerðing aflaheimilda hefur víðtækar afleiðingar á atvinnulíf Hornfirðinga, þ.e. sjómenn, fiskverkafólk, fyrirtæki og sveitarfélag. Tekjur í sjávarútvegi munu dragast verulega saman og störf tapast í fiskveiðum, fiskvinnslu og afleiddum störfum. Um leið og bæjarráð Hornafjarðar fagnar áformum ríkisstjórnarinnar um mótvægisaðgerðir vegna kvótaskerðingarinnar minnir bæjarráð á mikilvægi þess að aðgerðirnar nái til allra þeirra staða sem verða fyrir barðinu á kvótaskerðingunni, þ.m.t. Hornafjarðar. Í þessu sambandi hvetur bæjarráð ríkisvaldið til þess að flýta allri uppbyggingu í Sveitarfélaginu Hornafirði í tengslum við stærsta þjóðgarð Evrópu, Vatnjökulsþjóðgarð. Lesa meira
 
Reiðnámskeið

Reiðnámskeiði fyrir byrjendur, börn og unglinga - 09.07.2007 Júlí

Hestamannafélagið Hornfriðingur stendur fyrir reiðnámskeiði fyrir byrjendur, börn og unglinga og hefst námskeiðið miðvikudaginn 11. Júlí. Kennarar verða Torfi Þorsteinn Sigurðsson og Lena Hrönn Marteinsdóttir, alvanir hestamenn sem hafa stundað hestamennsku frá því að þau muna eftir sér. Kennt verður í gerði á svæði Hestamannafélagsins við Stekkhól, í 6 skipti og eru yngstu börnin í gerðinu alla tímana en reynt er að fara með eldri og reyndari þátttakendur í smá reiðtúr, sem auðvitað er mjög vinsælt. Farið verður í almenna umgengni gagnvart hestinum hvernig á kemba, beisla og þess háttar. Nú er hafin bygging reiðshallar sem gerir það kleift að hægt er að vera með reiðnámskeið allt árið og til dæmis er hugmynd um að krakkar geti mætti í reiðhöllina með svipuðu sniði og þegar þeir mæta í íþróttahúsið í dag og farið á reiðnámskeið. Lesa meira
 
Árni Rúnar Þorvaldsson

Mikilvægt að bregðast við hratt og örugglega segir forseti bæjarstjórnar - 09.07.2007 Júlí

Tilkynning um ákvörðun sjávarútvegsráðherra á niðurskurði á þorskkvóta kemur illa niður á Hornfirðingum eins og öðrum þar sem fiskvinnsla er stærsti atvinnuvegurinn en það er ekki venja Hornfirðinga að gefast upp þó móti blási heldur róa á ný mið meðan þorskurinn er í fríi. Árni Rúnar Þorvaldsson, forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar segir að þessi skerðing hafi mikil áhrif á atvinnulíf hér á Hornafirði og því mikilvægt að bregðast hratt og örugglega við. Við minnum á að ekki er búið að efna að fullu loforð um öll störf í tengslum við Fiskistofu sem áttu að koma hingað, segir Árni. Við höfum líka haft mikinn hug á að styrkja enn frekar við bakið á starfi Matís hér í Nýheimum þar sem okkur þykir mjög mikilvægt að efla alla rannsóknar- og þekkingarvinnu í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum og ekki síst með það að leiðarljósi að auka og efla rannsóknir sem miða að því að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi. Lesa meira
 
Flokkunargámar við Sindrahúsið

Grenndargámastöð við Sindra-húsið - 05.07.2007 Júlí

Hornfirðingar hafa tekið vel við sér með að flokka þann heimilisúrgang sem til fellur og ekki á að fara til urðunar. Fjölgað hefur verið tunnum við grenndargámastöðina við Sindrahúsið í miðbænum þar sem skila má flokkuðu sorpi s.s.sléttum pappa, (andvirði hans rennur til Sindra), dagblöðum, smáu brotajárni, filmuplasti og svo dósum og flöskum en andvirði þeirra rennur til Sindra. Ennfremur verður komið upp tunnu þar sem útlendingar geta skilað blönduðum úrgangi en þeir eiga það til að henda því í flokkunartunnurnar. Lesa meira
 
Sundlaug

Góð aðsókn að sundlauginni - 04.07.2007 Júlí

Góð aðsókn hefur verið að sundlauginni á Höfn fyrri helming þessa árs og að sögn Lars Jóhanns Andréssonar sundlaugarvarðar eru gestir alls 3525 sem er 301 fleiri en á sama tíma 2006. Sundæfingar eru fyrir 7-8 ára tvisvar í viku og æfingar fyrir 9 ára og eldri eru þrjá daga í viku. Þó æfingar standi yfir er sundlaugin opin öllum frá kl. 7.00 til 20.30 alla daga. Fjórir heitir pottar eru við laugina og eru þeir vel nýttir. Tveir sundlaugarverðir eru á vakt hverju sinni og segir Lars að allir sem þar starfa hafi sótt tilskilin námskeið og eru með þau réttindi sem sundlaugavörðum er skylt að hafa. Lesa meira
 
Sigla á kajökum

Á kajökum umhverfis Ísland - 03.07.2007 Júlí

Kajakræðarnir Greg Stamer sem er bandarískur og Freya Hoffmeister frá Þýskalandi komu til Hornafjarðar í gær. Þau fóru á kajökum sínum frá Garðskaga fyrir 23 dögum og á þeim tíma hafa þau hvílt sig á róðrinum í sex daga. Ferðin hefur gengið vel og voru þau hin hressustu þegar haft var samband við þau í morgun. Næsti áfangi er Vík með viðkomu við Jökulsárlón er veður og sjólag leyfa, en ekki er útlit á að ferðaveður verði í dag. Lesa meira
 
Frumlegir húsbílar

Gat þar að líta nýstárleg og skemmtilega frumleg ökutæki - 02.07.2007 Júlí

Um sjö hundruð manns gistu á tjaldsvæðinu á Höfn um helgina, þ.e. humarhátíðarhelgina. Fjöldi húsbíla og annarra gisti-farartækja voru á svæðinu og gat þar að líta bæði nýstárleg og skemmtilega frumleg ökutæki. Þau farartæki sem mesta athygli vöktu (að mati fréttamanns) hvað frumleik snerti voru erlend og þau sýna að hægt er að ferðast um þó ekki séu til staðar húsbílar með öllum heimilisþægindum. Að sögn Sigurðar Guðnasonar lögregluvarðstjóra gekk umferð vel um helgina utan áreksturs tveggja bíla á laugardaginn þar sem einhver meiðsli urðu á fólki og ökutækin voru illa farin. Sigurður sagði að mikil umferð hafi verið bæði suður og austur þessa daga og fóru sumir full geyst og stöðvaði lögreglan á Höfn 20 ökumenn fyrir hraðakstur sem var mest 130 km. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica