Ágúst
Pálmi með nýjar gullauga kartöflur
Pálmi með nýjar gullauga kartöflur
Pálmi með nýjar gullauga kartöflur
Mynd 1 af 2
1 2

01.08.2007 Ágúst

Tilboð Nettó byrja í dag

Búist er við miklum fjölda viðskiptavina í Nettó á Höfn um verslunarmannahelgina og verður opnunartími lengdur þessa daga. Við byrjum með okkar venjulega helgartilboð degi fyrr en venja er segir Pálmi Guðmundsson verslunarstjóri og með því viljum við reyna að dreifa álaginu og hvetjum því heimamenn til að gera sín helgarinnkaup í dag ef mögulegt er. Eins og sjá má á auglýsingu Nettó í Skjávarpinu er mikið úrval af allskonar góðgæti á grillið ásamt mörgu öðru. Pálmi segir að gerðar hafi verið ráðstafanir til að nóg verði til af matvöru fram yfir helgina og eins og ávallt mun starfsfólk Nettó vera reiðubúið til að veita sem besta þjónustu og við hökkum til að sjá ykkur sem flest.


Opnunartímar Netto yfir verslunarmannahelgina eru sem hér segir:
Fimmtudagur   2. ágúst 10:00 - 21:00
Föstudagur      3. ágúst 09:00 - 21:00
Laugardagur    4. ágúst 09:00 - 21:00
Sunnudagur     5. ágúst 10:00 - 18:00
Mánudagur      6. ágúst 10:00 - 18:00

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica