Ágúst
Glæsileg setningarathöfn á Unglingalandsmóti
10. Unglingalandsmót UMFí var sett í kvöld á Sindravelli að viðstöddu miklu fjölmenni. Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, setti mótið með formlegum hætti. Auk hans fluttu ávörp Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, Hjalti Vignisson, bæjarstjóri á Hornarfirði, og Ragnhildur Einarsdóttir, formaður USÚ. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, var einnig viðstaddur setningarathöfnina. Keppendur, sem eru um eitt þúsund, gengu fylktu liði inn á völlinn í mildu veðri.
Mótið hófst í morgun og var keppt í allan dag en á morgun taka keppendur upp þráðinn að nýju en mótinu lýjur síðan með flugeldasýningu á sunnudagskvöldið.





Skrifa athugasemd