Þráðlaus internetaðgangur fyrir mótsgesti og vefmyndavél
Settir hafa verið upp þráðlausir aðgangspunktar fyrir þá mótsgesti sem hafa tekið fartölvuna með til Hafnar og þurfa að komst á Internetið. Þessir staðir eru á Upplýsingastöðinni fyrir mótið sem er í Heppuskóla (við Íþróttahúsið), Sundlaug Hafnar við Hafnarbraut og á Atvinnulífssýningunni í Nýheimum. Aðgangur er á endurgjalds og einungis þarf að tengjast Landsmot_UMFI (SSID). Þeir hafa ekki hafa tekið tölvurnar sínar með geta komist á netið m.a. á Upplýsingamiðstöðinni á Jöklasýningu við Hafnarbraut gegn vægu gjaldi.
Þeir sem ekki eru svo lánsamir að geta fylgst með á staðnum geta farið á vefmyndavél sem hefur verið sett upp í Hafnarskóla og beint yfir mótssvæðið. Á forsíðu Hornafjordur.is er linkur beint inn á vefmyndavélina.





Skrifa athugasemd