Ágúst
Flugeldasyning Jökulsárlón
Flugeldasýning Jökulsárlón

07.08.2007 Ágúst

Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Laugardaginn 11.ágúst um miðnætti verður flugeldasýning á Jökulsárlóni og hefst hún á miðnætti. Þetta er í áttunda sinn sem flugeldasýning er haldin á lóninu en fyrstu árin var hún svona einskonar kveðjuhóf fyrir starfsfólkið. Það liðu ekki mörg ár þangað til þetta var orðinn stór viðburður sem fólk allstaðar að af landinu hefur sótt enda er glæsileiki sýningarinnar og umhverfi í algjörum sérflokki. Veðurútlit fyrir laugardaginn er eins og best verður ákosið þ.e. hægviðri, 14° hiti og þurrt. Ásamt staðarhaldaranum við Jökulsárlón Einari Birni Einarssyni sér Björgunarfélag Hornafjarðar um flugeldasýninguna sem stefnt er á að verði sú alflottasta sem hefur verið. Aðgangseyrir inn á svæðið er kr.500 á mann, og verði einhver afgangur umfram kostnað rennur hann til góðgerðarmála.

Mikið er af risastórum og fallegum jökum í lóninu núna og útsýni yfir lónið stórbrotið og fallegt. Fjöldi fólks kemur daglega að lóninu bæði til að fara í siglingu um lónið eða bara að ganga um svæðið, njóta útsýnisins og fá sér kaffi í þjónustuskálanum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica