Ágúst
Veðurguðirnir
Veðurguðirnir
Veðurguðirnir

15.08.2007 Ágúst

Sveitaball í Öræfum

Hér áður fyrr þegar félagsheimili eða samkomuhús voru starfrækt svo til í hverju sveitarfélagi eða hreppi eins og það hét þá, voru sveitaböllin algeng og með mest sóttu samkomunum og lét fólk vegalengdir ekki hindra sig í að komast á almennilegt sveitaball. Nú ætlar Ungmennafélag Öræfa að upphefja þessa gömlu stemningu og halda sveitaball í Hofgarði föstudaginn 17. ágúst. Hér á árum áður var ágústball í Öræfum árlegt en hefur verið í margra ára hléi. Vegna sívaxandi ferðaþjónustu hefur fólki fjölgað mikið á svæðinu yfir sumartímann og því var ákveðið að láta á það reyna hvort ekki næst að smala á eitt gott ball svona í sumarlok.

Húsið opnar kl. 23:00 og Veðurguðirnir sjá um að halda uppi stuðinu eins og þeim einum er lagið og allir sem farið hafa á samkomur hjá Öræfingum vita að þeir kunna að skemmta sér og gestum sínum. Aldurstakmark er 16 ára og miðaverð er 2000 kr.

Stjórn Ungmennafélags Öræfa vonar að sem flestir séu til í tuskið og enda sumarið með stæl

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica