Gott kríuvarp á Melatanga
Kríuvarp hefur gengið vel á Melatanga í sumar, svæðið er ekki mjög stórt en varpið þétt og ungarnir dafnað vel. Þar er búið að merkja 240 unga í sumar segir Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöð Suð-Austurlands og í lok júlí voru 53 ungar merktir við Jökulsárlón . Mjög lélegt kríuvarp var núna við Jökulsárlón þar er töluvert af yfirgefnum hreiðrum og eggin liggja eins og hráviður út um allt varpsvæðið og kríurnar farnar út á sjó. Ég tel að skýringin á þessu ástandi sé að sjófuglana vanti æti og eins er í Óslandi þar er mikið af dauðum ungum. Varp virðist ganga illa hjá sjófuglunum og t.d. er útlit á að varp hafi misfarist hjá skúminum annað árið í röð.
Allt annað er uppi á teningnum hjá öndum, gæsum og álftum þar hefur allt gengið eins og best lætur.Mörg álftapör eru á svæðinu innan við Þveit og algengt að þau séu með 4 eða 5 unga. Þá dafna geitungarnir vel og Björn hefur eytt fjölda búa í sumar en það er þó lán að þetta eru eingöngu trjágeitungar sem hér eru og því meinlausir nema þeir verði fyrir áreitni en þá beita þeir vopnum sínum.





Skrifa athugasemd