Biskupinn vísiteraði á 80 ára afmæli Kálfafellsstaðarkirkju
Biskupinn, herra Karl Sigurbjörnsson vísiteraði nýlega allar kirkjur í Skaftafells-prófastsdæmi og í för með honum var séra Haraldur Kristjánsson prófastur ásamt eiginkonum þeirra beggja. Hátíðarmessa var í Kálfafellsstaðarkirkju kl.14 sl. mánudag í tilefni 80 ára afmæli kirkjunnar og þar predikaði séra Einar Jónsson á Kálfafellsstað, biskupinn vísiteraði og talaði við börnin og á eftir var veislukaffi í boði sýslunefndar. Venja er á öllum kirkjustöðum sem biskup vísiterar að halda fund með sóknarnefndum og fara yfir þá muni sem eru í eigu kirkjunnar á hverjum stað. Þetta er í fyrsta sinn sem Karl Sigurbjörnsson biskup vísiterar í Skaftafellsprófastsdæmi.
Frá Kálfafellsstað var haldið að Brunnhól og vísiterað þar og á þriðjudag að Hofi í Öræfum.
Að lokinni messu þar hélt biskup ásamt fylgdarliði í kirkjur í Vestur-Skaftafellssýslu.
Að sögn séra Einars var kirkjusókn góð.




Skrifa athugasemd