September
Jöklamælingar hjá FAS
Jöklamælingar hjá FAS
Jöklamælingar hjá FAS (Mynd:FAS)
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

19.09.2007 September

Jöklamælingar hjá FAS

Í dag var farið í hina árlegu jöklamælingaferð að Heinabergsjökli. Að þessu sinni voru með í för sjónvarpsmenn frá franskri stöð sem eru að taka saman fréttir um hlýnun jarðar. Þeir höfðu haft spurnir af jöklamælingum skólans og fannst þær áhugaverðar. Veðrið var einstaklega gott og nóg af krækiberjum til að tína. Eins og áður er mælt út frá tveimur punktum. Á nyrðri punktinum hefur jökullinn gengið fram sem nemur um 60 metrum en á syðri punktinum hefur jökullinn hopað um eina 70 metra. Þess ber að geta að jökullinn gengur fram í lón og því geta niðurstöður verið mismunandi eftir mælipunktum.

Ein vísbending um verulega bráðnun er að jökullinn er mjög dökkur á að líta, einkum syðst.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica