September
Stjórn Ríki Vatnajökuls ehf
Stjórn Ríki Vatnajökuls ehf
Stjórn Ríki Vatnajökuls ehf ásamt nýráðnum framkvæmdarstjóra

21.09.2007 September

Nýráðinn framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls ehf

Rósa Björk Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls. Hún er fædd árið 1965 og er Reykvíkingur en hefur verið búsett á Vatnsenda í Kópavogi undanfarin ár. Rósa Björk hefur starfað undanfarin ár sem leiðsögumaður og bjó um tíma á Ítalíu, stundaði nám þ.á.m. í listaháskóla og hefur notað ítölskukunnáttuna í starfi sínu sem leiðsögumaður. Hún hefur starfað með öllum helstu ferðaskrifstofum landsins. Undarfarin tvö ár hefur hún einnig starfað sem auglýsingarstjóri á Eiðfaxa tímariti hestamanna og séð um Stóðhestablað Eiðfaxa undanfarin tvö ár. Rósa hefur látið til sín taka ýmiskonar frumkvöðlastarfi eins og það að hafa flutt inn fyrstu sleðahundana til Íslands af tegundinni Siberian Husky og ræktað þá undir nafninu Heimskautaræktun, einnig hefur hún unnið að því að innleiða sleðaíþróttir og hundaskíðagöngu á Íslandi en hún hélt slíkt námskeið á Vatnajökli síðastliðið vor og fékk til þess kennara úr ítölsku ölpunum. Hún hefur mikinn áhuga á vetrarferðamennsku og er víða óplægður akur í þeim efnum segir Rósa Björk sem hlakkar mikið til að taka að sér þetta krefjandi starf.

Ríkis Vatnajökuls ehf. , er ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasi Suðausturlands. Ríki Vatnajökuls er afrakstur af klasastarfi sem staðið hefur yfir í Hornafirði frá árinu 2004 og HH verkefnis sem haldið var á vegum Útfluttningsráðs Íslands í byrjun árs 2007. Nýstofnaður Vaxtasamningur Austurlands og vilji Sveitarfélagsins Hornafjarðar styður enn frekar þann ásetning heimamanna að stofna til formlegs félags ferðaþjónustuaðila og matvælaframleiðenda sem vinni að sameiginlegum hagsmunum þátttakenda með skýrri framtíðarsýn og stefnu.
Fjöldi aðila hefur komið að undirbúningi en hluthafar félagsins eru 40. Þátttakendur í Ríki Vatnajökuls meta ávinning samstarfs fram yfir sundurlyndi.
Félagið er því samstarfsvettvangur keppinauta aukinheldur sem fjöldi annarra kemur að málinu. Þeir aðilar sem hafa áhuga á að starfa innan Ríkis Vatnajökuls eru hvattir til að setja sig í samband við Rósu

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica