September
Ferð í Vopnafjörð
Ferð í Vopnafjörð
Þátttakendur í ferð Ferðafélagsins í Vopnafjörð sem farin var í júlí 2007

24.09.2007 September

Helmingi fleiri tóku þátt í ferðum Ferðafélagsins í sumar

Síðasta ferð Ferðafélags A-Skaft. sem vera átti síðustu helgi var felld niður vegna veðurs og var það síðasta ferð sumarsins. Nefndin vill þakka öllum þeim sem aðstoðuðu félagið með einum og öðrum hætti kærlega fyrir sumarið og einnig öllum þeim sem gengu með okkur. Við erum mjög ánægð með þátttökuna í ferðir sumarsins og rétt er að taka fram að það er um helmings aukning á milli ára. Einnig er gaman að sjá hvað mikil breidd er í aldri þeirra sem taka þátt í ferðunum en sá yngsti var 6 mánaða og sá elsti 80 plús. Þrjár ferðir féllu niður í sumar. Ein vegna lélegs veðurútlits, ein vegna þoku og rigningar og sú síðasta haustlitaferð í Hamarsdal, vegna snjóa og hvassviðris. Að öðru leiti vorum við mjög heppin með veður. Innan tíðar förum við svo að vinna að undirbúningi fyrir næsta sumar, sem verður með svipuðu sniði, boðið verður upp á stuttar kvöldferðir, dagsferðir á mismunandi erfileikastigum, jeppaferð, óvissuferð og kannski ævintýraferð.

Ef þið hafið hugmyndir að gönguleiðum þá eru allar ábendingar vel þegnar. Einnig verður 5 daga pakkaferðin á Humarklær og í Lónsöræfi á sínum stað. Að lokum er uppi hugmynd að myndakvöldi og langar okkur að biðja þá sem eiga myndir úr eldri ferðum félagsins og eru tilbúnir að lána okkur þær, að hafa samband við einhverja úr nefndinni.
Við viljum enn og aftur þakka ykkur fyrir skemmtilegt ferðasumar og hlökkum til að sjá ykkur með vorinu,

Ferðanefnd Ferðafélagsins.

Sjá myndasafn

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica