Október
Finnlandsferð FAS 2007
Finnlandsferð FAS 2007
Finnlandsferð FAS 2007
Mynd 5 af 6
1 2 3 4 5 6

04.10.2007 Október

Hyvää huomenta (góðan daginn)

Fimmtudaginn 20. september lögðu 8 nemendur í frumkvöðlafræði ásamt tveimur kennurum af stað til bæjarins Jämsä í Finnlandi. Um síðustu áramót hófst samstarf við Jämsän seudun kolultuskeskus/ Maatalous- ja puutarhaoppilatios skólann sem er garðyrkju-, landbúnaðar- og umhverfisskóli. Heimsóknin til Finnlands er liður í samstarfsverkefninu. Jämsä er lítill bær 250 kílómetra fyrir norðan Helskinki og má með sanni segja að við höfum verið út í sveit enda var stór hluti tímans ytra nýttur til að kynna okkur hvernig Finnarnir umgangast náttúruna og nýta hana. Við gengum mikið um skóga enda er töluvert af trjám í Finnlandi. Einnig er mikið af stöðuvötnum og hafa yfir 100.000 vötn fengið nafn. Á öllum gönguleiðum sem við fórum eru með stuttu millibili eldstæði og viðargeymsla þar sem leyfilegt er að er að taka við og kveikja eld til að hita ketilkaffi, elda mat eða þá bara til að hlýja sér.

Tvo daga var hópavinna þar sem bæði finnsku og íslensku krakkarnir unnu saman að ákveðnum verkefnum. Þannig lærðu einhverjir hvernig ullin er nýtt ? sá hópur varð reyndar svo frægur að komast í finnska ?Eystrahornið?, aðrir unnu að matargerð og að sjálfsögðu var farið út í skóg til að tína bæði sveppi og ber til að matreiða úr. Athyglisvert þótti okkur hvernig fiskur er moðsteiktur við opinn eld og bragðaðist hann einstaklega vel.

Einn dagurinn var tileinkaður hestum, bæði íslenskum og finnskum. Það hafði verið ákveðið að íslenski hópurinn færi á hestbak á því sem þeir kölluðu finnska smáhesta ? ég held að flestir hafi séð fyrir sér hesta sem væru minni en sá íslenski en þegar á reyndi voru þeir töluvert stærri. Þó komust þeir ekki í hálfkvisti við alvöru finnska hesta en til að komast á bak þeim þurft pall eða kassa til að stíga af.

Þó við værum einungis í viku fræddumst við mikið, t.d. hversu mikilvægir skógarnir eru. Yfir 50 pappírsverksmiðjur eru í landinu og afkasta þær ótrúlega miklu, ein vélasamstæða framleiðir t.d. 100 kílómetra langa og 9 metra breiða pappírsrúllu á klukkustund og þarf um 1600 tonn af timbri til að halda slíkri vél gangandi í sólarhring.
Ýmislegt annað athyglisvert bar fyrir augu s.s. skíðastökkpallar, mauraþúfur og bústaðir bjóra og annarra dýra í skóginum. Að sjálfsögðu brugðu allir sér í sauna. Spiluð var ný tegund af fótbolta sem nefnist skógarfótbolti og þeir allra hörðustu létu sig hafa það að synda í stöðuvatni og fara svo í sauna á eftir.

Á leiðinni heim var komið við í Helsinki og nokkrir athyglisverðustu staðirnir skoðaðir. Má þar nefna hvítu kirkjuna og eins Temppeliakuio kirkjuna sem er hálf niðurgrafin í berggrunninn en með fallegu hvolfþaki. Þá var stoppað við minnisvarðann um Sibelius en hann var eitt fremsta tónskáld Finna.
Ferðin var ljómandi góð og komum við heim reynslunni ríkari, en heldur fannst þó okkur finnskan erfið. Nú er svo að sjá hvernig við getum nýtt okkur það sem fyrir augu bar.

Fyrir hönd ferðalanganna
Hjördís Skírnisdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica