Bæjarstjórn ítrekar fyrri ályktanir um staðsetningu björgunarþyrlu á Hornafirði
Á fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar sem fram fór í Hofgarði í Öræfum s.l. fimmtudag var gerð eftirfarandi ályktun um björgunarþyrlu: "Bæjarstjórn Hornafjarðar vill ítreka fyrri ályktanir um björgunarþyrlu og beinir þeim eindregnu tilmælum til yfirvalda að björgunarþyrla verði staðsett á Hornafirði. Hornafjarðarflugvöllur er mikilvægur hlekkur í björgunar- og öryggisþjónustu í landinu. Lendingarskilyrði eru góð og flugvöllurinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki í björgunaraðgerðum bæði til lands og sjávar á Suður- og Austurlandi. Vegna fjarlægðar milli Hafnar og Höfuðborgarsvæðisins eru veður oft ólík á þessum tveim stöðum. Þyrlur hafa takmarkað flugþol og fljúga ekki yfir fjalllendi í slæmum veðrum og því myndi þyrla staðsett á Hornafirði veita sjófarendum við Suðurströndina og á sunnanverðum Austfjörðum aukið öryggi.
En á þessu svæði eru fjölförnustu siglingaleiðir til og frá landinu og gjöful fiskimið. En jafnframt er erfiðari hafnaraðstaða og þyngri sjór en annarsstaðar við landið. Þegar ný þyrla kom til landsins síðastliðinn vetur var fyrsti viðkomustaður hennar Hornafjarðaflugvöllur og þyrlan sem tók þátt í aðgerðum á Fáskrúðsfirði á dögunum nýtti Hornafjarðarflugvöll á ferð sinni.
Ferjuflugvélar hafa oft viðkomu á Hornafirði, enda gegnir flugvöllurinn mikilvægu hlutverki fyrir þær.
Frá Hornafirði er stutt á fjölfarna ferðamannastaði og ætla má að á næstu árum muni verða mikil aukning ferðamanna á svæðinu í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Í ljósi umræðu undanfarið um aukið eftirlit með ferðum skipa og flugvéla til landsins teljum við að gera þurfi endurbætur á öryggis- og eftirlitsþáttum á Hornafjarðarflugvelli svo hægt sé að taka á móti minni farþegavélum og ferjuflugvélum auk þess að björgunarþyrla sé staðsett á svæðinu svo björgunar- og eftirlitsmál séu viðunandi."
Á sama fundi var gerð eftirfarandi bókun vegna mótvægisaðgerða,
"Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar fram komnum mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna skerðingar á þorskkvóta. Þessar tillögur hafa það að markmiði að renna fleiri stoðum undir atvinnulíf á landsbyggðinni og auka fjölbreytni. Það samræmist þeirri stefnu sem Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fylgt undanfarin ár. Nýheimar hafa nú verið starfræktir í fimm ár og hafa þegar sett mark sitt á samfélagið. Sá stuðningur sem samfélagið fær nú, samkvæmt þessum aðgerðum skiptir afar miklu. Bæjarstjórn bindur einnig vonir við að góður hluti af því fjármagni sem skilgreint er í mótvægisaðgerðum til uppbyggingar ferðaþjónustu og endurbóta á fasteignum ríkisjóðs renni til Hornafjarðar. Þrátt fyrir það er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu einyrkja í útgerð og minni fiskverkendum, sem og af stöðu sjómanna og fiskverkafólks. En með styrkara samfélagi er auðveldara að takast á við niðursveiflu þrátt fyrir að ekkert komi í stað skerðingar á veiðiheimildum."





Skrifa athugasemd