Október
Fas Skaftafelli 2007
Fas Skaftafelli 2007
Fas Skaftafelli 2007
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

17.10.2007 Október

FAS í námsferð í Skaftafell

Það er komin nokkurra ára hefð á það að nemendur á náttúrufræðibraut sem eru komnir áleiðis í námi fari í námsferðir. Mánudaginn 15. október heldu ríflega 30 nemendur frá FAS og VA (Verkmenntaskóla Austurlands) í Skaftafell í blíðskaparveðri. Á þessari leið er kjörið að sjá hvernig jöklar hafa mótað landslagið og mjög auðvelt er að tengja ýmis hugtök og heiti úr náttúrufræði við það sem fyrir augu ber. Auk þess að stoppa við Jökulsárlónið var gengið upp á Kvíármýrarkamb. Í Skaftafelli var farið í tvo dágóða göngutúra þar sem saman fléttuðust; náttúrufræði, jarðfræði, saga og bókmenntir.

Hópurinn gisti í Freysnesi. Á mánudagskveldinu var efnt til kvöldvöku þar sem spurningakeppni í anda Útsvars var áberandi. Það voru þó ekki skólarnir tveir sem áttust við heldur var skipt í stelpu- og strákalið. Það fór svo að stelpurnar höfðu betur eftir aukaspurningar.
Á leiðinni heim skildu leiðir í Þórbergssetrinu en Norðfirðingarnir vildu nýta tækifærið og fræðast nánar um Þórberg.

Takk fyrir frábæra ferð krakkar!

- Hjördís (fas.is)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica