Október
Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis
Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis
Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis

26.10.2007 Október

Sparisjóðurinn úthlutar úr styrktar- og menningarsjóði

Sparisjóðurinn á Höfn, Djúpavogi og Breiðdalsvík úthlutaði í dag, í fyrsta skipti, úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Áætlað er að úthlutun þessi fari fram árlega, í byrjun vetrar, en þess má geta að þetta er tuttugasta árið sem úthlutað er úr sjóðnum. Þeir aðilar sem hlutu styrki úr sjóðnum voru: Hornafjarðarmanni, Hornfirska skemmtifélagið, Hammondhátíðin á Djúpavogi, Guðjón Sveinsson, rithöfundur á Breiðdalsvík, Þórbergssetur og Saga Öræfa frá landnámi til 1950.


Um þá sem fengu styrki.

Hornafjarðarmanni
Keppni í Hornafjarðarmanna hefur farið fram víðsvegar, á undanförnum áratug. Á þessum árum hafa verið tilnefndir Hornafjarðarmeistarar, Íslandsmeistarar sem og heimsmeistarar í greininni. Það er meistarinn, Albert Eymundsson, fæddur og uppalinn Hornfirðingur, sem hefur haft veg og vanda að þessari íþrótt og hann segir svo frá:
"Í tilefni af 100 ára afmæli byggðar á Höfn fékk ég þá hugmynd að endurvekja áhuga á "Hornafjarðarmanna". Jafnframt taldi ég þetta jákvæða og ódýra kynningu fyrir Hornafjörð. Ég sá strax möguleika á sérstakri spilaútgáfu með spilareglunum á nokkrum tungumálum, og að koma á fót veglegu móti"
Árið 2007 er 11. árið sem þessi keppni fer fram og á Unglingalandsmóti í sumar var Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNECEF, látin njóta góðs af.

Hornfirska skemmtifélagið
Félagið hefur staðið að metnaðarfullum tónlistarskemmtunum í sex ár.
Í ár er það "Eitís", sýning sem fram fer á Hótel Höfn, við góðan orðstýr.
Einnig hefur félagið staðið fyrir blúshátíðum, svokölluðum Norðurljósablús, þar sem fram hafa komið helstu blústónlistamenn landsins, auk erlendra snillinga.
Skemmtifélagið er augljóslega mikil lyftistöng fyrir menningarlífíð hér og ekki síður góð kynning, en áhorfendur koma víða að til að sjá og heyra í hornfirskum listamönnum enda er eitt af markmiðum skemmtifélagsins að laða ferðafólk á staðinn utan hefðbundins ferðamannatíma.

Hammondhátíðin á Djúpavogi
"Hátíðin var haldin til að heiðra og kynna fyrir tónlistaraðdáendum Hammondorgelið sem úrsmiðurinn Hammond töfraði úr huga sínum til að geta gert fátækum söfnuðum kleift að syngja við orgelundirleik" segir á heimasíðunni.
Ekki dugði minna en heil helgi fyrir hátíðina. Tónlistarfélag Djúpavogs og heimamenn geta verið stoltir af framtakinu.
Boðið var upp á mikla tónlistarveislu sem samanstóð af djassi, blús, klassík, rokki og frumsömdu efni.
Hátíðin í ár var einstaklega vel heppnuð og tóku heimamenn sem og landslið tónlistarmanna þátt.
Í aðalhlutverki var orgelið góða. Spilað var stanslaust frá fimmtudagskvöldi fram að hádegi á sunnudegi en þá lauk hátíðinni með sjómannadagsmessu í Djúpavogskirkju.

Guðjón Sveinsson, rithöfundur á Breiðdalsvík
Í tilefni af 70 ára afmæli sínu gaf Guðjón út bókina Saltkeimur sem er einstaklega fallega unnin bók, hönnuð af Guðjóni Braga, sem er dóttursonur hans og gefin út af Mánabergsútgáfunni. Þ.e.a.s. hann gefur sínar bækur út sjálfur.
Nú er Þorsteinn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður að skrifa handrit að kvikmynd um Söguna Daníel, þannig að það er margt í gangi hjá honum.
Síðla sumars var haldið málþing, í Nýheimum á Höfn, um Guðjón Sveinsson og var tilefnið 70 ára afmælið og einnig 40 ára höfundarafmæli.

Þórbergssetur
Þann 30. júní 2006 var Þórbergssetrið opnað við hátíðlega athöfn. Það yrði langt mál upp að telja alla þá menningarviðburði sem síðan hafa farið þar fram. Forstöðumaður er Þorbjörg Arnórsdóttir, búsett á Hala. Vitnað er í orð hennar sem hún viðhafði við hátíðlegt tækifæri: "Þórbergssetur er ekki bara rithöfundasetur til minningar um einn mann. Verk Þórbergs kalla á miklu víðari skírskotun. Allt héraðið er sögusvið bóka hans og honum tókst betur en nokkrum öðrum að kalla fram sérkenni íslenskrar alþýðumenningar með verkum sínum. Áskorun Þórbergsseturs er að svara ákallinu í verkum hans og halda áfram að draga fram sérkenni heimabyggðar, að bjarga menningarverðmætum frá glötun, að færa þekkingu fortíðar inn í framtíðina, að lifa með landinu og reyna að hægja á ferðinni um stund og siðla um göturnar undir Steinafjalli, og hlusta á veðrið og blómin og heyra steinana tala á ný".

Saga Öræfa frá landnámi til 1950
Menningarmiðstöð Hornafjarðar er ætlað að gegna mjög mikilvægu og fjölþættu hlutverki í uppbyggingu sveitarfélagsins. Starfsemin fer m.a. fram í Pakkhúsinu, Gömlubúð, Nýheimum og víðar.
Sigurður Björnsson á Kvískerjum hefur skráð sögu Öræfa frá landnámi til ársins 1950 og hefur í félagi við Menningarmiðstöðina unnið að útgáfu handritsins. Sigurður hefur unnið að sagnaritun um áratugaskeið og eftir hann liggja fjölmargar greinar um sögu og menningu Austur-Skaftafellssýslu.
Tilefni útgáfunnar er níræðis afmæli Sigurðar og hefur undirbúningur staðið allt þetta ár. Handritinu skilaði Sigurður á tölvutæku formi en nú er lokafrágangur eftir, uppsetning og prentun.
Gert er ráð fyrir að bókin komi út í byrjun nóvember næstkomandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica