Þórbergssetur, opið allt árið
Að undanförnu hafa skólahópar verið að heimsækja Þórbergssetur m.a. frá framhaldsskólum á Austurlandi og njóta þar fræðslu og skemmtunar. Á Hala í Suðursveit og í Þórbergssetri er nú búið að koma á fót fjölbreyttri starfsemi og dagskrá sem miðar að móttöku ferðamanna, skólahópa og annarra smærri hópa fyrir utan háannatímann. Þar er hægt að fá margs konar fræðslu um bókmenntir, sögu, menningu og náttúrufar í Skaftafellssýslum, njóta útiveru og fara í gönguferðir með leiðsögn. Í Þórbergssetri er góð aðstaða fyrir 40-60 manna hópa og þar er góður veitingasalur og píanó. Einnig er tekið á móti minni hópum allt eftir óskum hvers og eins. Þeir sem koma í heimsókn eiga þess kost að kynnast ,,veröld sem var" fyrir ekki svo löngu síðan, en það eru rúm 40 ár síðan einangrun Suðursveitar var rofin þegar jökulár voru brúaðar hver af annarri á árunum 1958?1974. Fjallað er um alþýðumenningu og hvernig greina má áhrif hennar í verkum eins merkasta rithöfundar þjóðarinnar, lesið er úr verkum Þórbergs og hlustað á frásögur Steinþórs Þórðarsonar á Hala bróður hans
Þórbergssetur er með starfsemi allt árið Á Hala er gisting fyrir 25 manns í tveimur húsum bæði svefnpokapláss og uppábúin rúm. Ef að um stæri hópa er að ræða er hægt að fá gistingu í næsta nágrenni en nýta sameiginlega veitingaaðstöðu í Þórbergssetri.
Í allan vetur býðst mismunandi hópum, fjölskyldum og einstaklingum að koma í dvöl á Hala og njóta fræðslu og þjóðlegra veitinga í Þórbergssetri, fara í gönguferðir í nágrenninu eða ferðir með leiðsögn um Suðursveit. Viðkomandi hópum býðst að koma með eigin dagskrá eða njóta dagskrár á vegum Þórbergsseturs allt eftir óskum hvers og eins.
Hvað er í boði
- Hægt að velja saman mismunandi viðfangsefni, útiveru, hlustun, upplifun inn á sýningu, umfjöllun um sögu og mannlíf, kvöldvöku með staðbundnu efni o. fl
- Gönguferð í nánast umhverfi , ratleikur, fjallað um náttúrulýsingar Þórbergs, örnefni, þjóðsögur, draugasögur, þjóðtrú, ,, talað við steina?
- Kynning með powerpoint glærum á Þórbergi og umhverfi
- Myndasýning og kynning úr Suðursveit. saga og náttúra
- Skoða sýningar í Þórbergssetri. Leiðsögn og upplestur inn á sýningu
- Frásögur Steinþórs á Hala, þulur, ljóð, draugasögur, útburðarsögur, fróðleikur o.fl.
- Setið í myrkri í fjósbaðstofunni og hlustað á lestur eða frásögur líkt og í gamla daga
- Álar, umfjöllun um ála í verkum Þórbergs, álasögur, skoða ál
- Möllers æfingar
- Fjallaferð, náttúruskoðun, að finna fornminjar, búsetuminjar í landslagi, gönguferð að
- Klukkugili ( 4-5 klst gott veður)
- Sambýli manns og jökuls ( fjallað um ferðalög yfir Breiðamerkursand, gönguferð að jökli um landsvæði sem var undir jökli fram yfir 1990)
- Upplestur úr verkum Þórbergs
- Helgarlestur, bækurnar Í Suðursveit lesnar saman við umhverfi og náttúru
- Þegar aðstæður leyfa, stjörnuskoðun, ganga að kvöldlagi í myrkri, skautaferðir á Breiðabólsstaðarlóni
Einstaka viðburðir verða síðan auglýstir sérstaklega en með góðum fyrirvara.
-Þórbergssetur





Skrifa athugasemd