Sveitarfélagið Hornafjörður - Október
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
    <ttl>40</ttl>
Þórbergssetur, opið allt árið
      <description>Að undanförnu hafa skólahópar verið að heimsækja Þórbergssetur m.a. frá framhaldsskólum á Austurlandi og njóta þar fræðslu og skemmtunar. Á Hala í Suðursveit og í Þórbergssetri er nú búið að koma á fót fjölbreyttri starfsemi og dagskrá sem miðar að móttöku ferðamanna, skólahópa og annarra smærri hópa fyrir utan háannatímann. Þar er hægt að fá margs konar fræðslu um bókmenntir, sögu, menningu og náttúrufar í Skaftafellssýslum, njóta útiveru og fara í gönguferðir með leiðsögn. Í Þórbergssetri er góð aðstaða fyrir 40–60 manna hópa og þar er góður veitingasalur og píanó. Einnig er tekið á móti minni hópum allt eftir óskum hvers og eins. Þeir sem koma í heimsókn eiga þess kost að kynnast ,,veröld sem var” fyrir ekki svo löngu síðan, en það eru rúm 40 ár síðan einangrun Suðursveitar var rofin þegar jökulár voru brúaðar hver af annarri á árunum 1958–1974. Fjallað er um alþýðumenningu og hvernig greina má áhrif hennar í verkum eins merkasta rithöfundar þjóðarinnar, lesið er úr verkum Þórbergs og hlustað á frásögur Steinþórs Þórðarsonar á Hala bróður hans</description>
      <alt>Þórbergssetur</alt>
Samið við Héraðsverk um Þvottár- og Hvalnesskriður
      <description>Vegagerðin hefur samið við Héraðsverk hf. á Egilsstöðum  um endurbætur á veginum um Þvottár-og Hvalnesskriður en tilboð þeirra var 74.7 mkr. sem er 80.55 % af kostnaðaráætlun. Lægsta tilboðið í verkið átti Rósaberg ehf. kr 48.8 mkr. en það tilboð var dregið til baka og hætt við.</description>
Sparisjóðurinn úthlutar úr styrktar- og menningarsjóði
      <description>Sparisjóðurinn á Höfn, Djúpavogi og Breiðdalsvík úthlutaði í dag, í fyrsta skipti, úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Áætlað er að úthlutun þessi fari fram árlega, í byrjun vetrar, en þess má geta að þetta er tuttugasta árið sem úthlutað er úr sjóðnum. Þeir aðilar sem hlutu styrki úr sjóðnum voru: Hornafjarðarmanni, Hornfirska skemmtifélagið, Hammondhátíðin á Djúpavogi, Guðjón Sveinsson, rithöfundur á Breiðdalsvík, Þórbergssetur og Saga Öræfa frá landnámi til 1950.</description>
Bjóða gestum og gangandi í kaffi og kynna breytingar á hótelinu
      <description>Á morgun laugardag taka eigendur Hótels Hafnar á móti Austur-Skaftfellingum og öllum þeim sem vilja líta við í kaffisopa á hótelið milli 14 og 16 og skoða þær breytingar sem hafa orðið á því. Eins og flestir hafa orðið varir við þá hafa staðið yfir miklar framkvæmdir við Hótelið síðustu 18 mánuði en þeim lauk fyrir sumarið. Búið er að klæða hótelið að utan með steinflísum, öll herbergi á hótelinu hafa verið tekin í gegn en það fól í sér m.a. endurnýjun á innréttingum, gólfefnum og allt var málað. Veitingasalirnir voru einnig teknir í gegn, þar var skipt um gólfefni og húsbúnað. Fyrir utan þessar framkvæmdir á Hótelinu var bætti við 32 2ja manna herbergjum með því að kaupa fyrir á árinu Víkurbraut 11 og 13. Öll herbergin þar eru útbúin eins og á 3ja stjörnu hóteli, þ.e. með síma, baði, sjónvarpi og þráðlausri nettengingu.</description>
Elvar Bragi í bandið hans Bubba?
      <description>Allir þekkja Bubba Morthens. Hann stendur þessa dagana í samvinnu við Stöð tvö fyrir raunveruleikaþætti. Bubbi hefur fengið nokkra þekkta tónlistarsnillinga til að spila saman en er að leita að góðum söngvurum. Því hefur verið ákveðið að halda áheyrnarprufur á nokkrum stöðum á landinu. Síðsta miðvikudag gafst þeim sem vilja reyna að komast í bandið hans Bubba tækifæri til að spreyta sig á Neskaupsstað. Þrettán keppendur víðs vegar af Austurlandi tóku þátt og komust fjórir þeirra áfram. Einn fjórmenninganna er hann Elvar Bragi okkar sem Hornfirðingar þekkja nú orðið ágætlega úr tónlistarlífinu.</description>
      <alt>Elvar Bragi</alt>
Vegur í sundur í Stafafellsfjöllum og ófært fyrir marga sumarbústaðaeigendur
      <description>Vegasambandslaust er við meirihluta sumarbústaðabyggðarinnar í Stafafellsfjöllum í Lóni eftir að Jökulsá tók stórt skarð í veginn. Mikil rigning var á þessu svæði í gær og nótt  og Jökulsá orðin kolmórauð og vatnsmikil. Ekki er ljóst hvenær fært verður í innbyggðina þar sem vegurinn er ekki í umsjá Vegagerðarinnar heldur landeigenda. 
|nl|Reynir Gunnarsson  hjá Vegagerðinni segir að líkur séu á að á næsta ári verði sú breyting á reglugerð um vegi þar sem eru 30 bústaðir eða fleiri þannig að þeir lendi undir umsjá Vegagerðarinnar en þangað til sé viðhald og viðgerð í höndum landeigenda.</description>
      <alt>Stafafellsfjöll</alt>
Ráðinn í stöðu lektors við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
      <description>Um síðustu mánaðarmót lét Ragnar Frank Kristjánsson af starfi þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli og hefur hann tekið við starfi lektors við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Ragnar hefur verið þjóðgarðsvörður í Skaftafelli í tæp níu ár  og er óhætt að segja að þjóðgarðurinn hefur tekið miklum breytingum til framfara og margt unnist á þessum árum sem hann hefur verið í umsjá Ragnars. Þegar fréttamaður vefsins  bað hann að rifja upp það helsta sem áunnist hefur  á þessum árum og hver eru stærstu verkefnin tók hann því vel eins og hans er von og vísa og sagði: Þegar litið er yfir farinn veg þessi tæp níu ár sem ég hef verið hér þjóðgarðsvörður er ég bara þokkalega ánægður með þann árangur og þá þróun sem orðið hefur hér, verkefnin hafa verið margvísleg  og samskipti við heimamenn góð og eins er ánægjulegt að vita að orðstír þjóðgarðsins er góður. Ég tel að ansi miklar breytingar hafi orðið á þessum 9 árum og þrátt fyrir peningahallæri til framkvæmda þá höfum við náð ýmsum framkvæmdum sem hafa verið góðar bæði fyrir náttúruna og þá gesti sem hingað koma.</description>
Erum við hrædd við jafnrétti?
      <description>Á miðvikudag fer fram bein útsending um stöðu jafnréttismála í gegnum FS-netið í Nýheimum undir merkjum "Erum við hrædd við jafnrétti?" "Kvenmenni í karlaveldi?". Ráðstefnan er send út frá ráðstefnusal Keilis sem er miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Reykjanesi og er það Keilir þekkingarsetur sem stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Þekkingarnet Austurlands ásamt öðrum símenntunarmiðstöðvum, atvinnuþróunarfélögum og tengslaneti kvenna á landsbyggðinni.  Markmið ráðstefnunnar er að ræða stöðu jafnréttismála og leiðir til að auka jafnrétt kynjanna á vinnumarkaði. Sérstaklega verður farið ofaní hvernig uppeldi og menningarlegt umhverfi hefur áhrif á viðhorf og sjálfsmynd kynjanna.</description>
FAS í námsferð í Skaftafell
      <description>Það er komin nokkurra ára hefð á það að nemendur á náttúrufræðibraut sem eru komnir áleiðis í námi fari í námsferðir. Mánudaginn 15. október heldu ríflega 30 nemendur frá FAS og VA (Verkmenntaskóla Austurlands) í Skaftafell í blíðskaparveðri. Á þessari leið er kjörið að sjá hvernig jöklar hafa mótað landslagið og mjög auðvelt er að tengja ýmis hugtök og heiti úr náttúrufræði við það sem fyrir augu ber. Auk þess að stoppa við Jökulsárlónið var gengið upp á Kvíármýrarkamb. Í Skaftafelli var farið í tvo dágóða göngutúra þar sem saman fléttuðust; náttúrufræði, jarðfræði, saga og bókmenntir.</description>
Mynd Brians notuð til að auglýsa ljósmyndasamkeppni í Bretlandi.
      <description>Í byrjun sumars dvaldi breski ljósmyndarinn Brian Griffin á Hornafirði. Hann ljósmyndaði íbúa svæðisins auk þess sem hann tók landslagsmyndir. Á heimasíðu Brians má sjá brot af þeim myndum sem hann tók hér og ein þeirra var notuð til að auglýsa ljósmyndasamkeppni í Bretlandi. Hornfirðingar fá vonandi tækifæri til að skoða afrakstur heimsóknar hans áður en langt um líður en þangað til er hægt að skoða verk hans á heimasíðu hans briangriffin.co.uk og myndir frá Hornafirði er að finna undir flipanum “stills”.</description>
      <alt>Brian</alt>
Undirritun samkomulags um eldvarnir og fræðslu í efstu bekkjum leikskólanna
      <description>Í gær var undirritað samkomulag á milli Leikskólanna Lönguhóla, Krakkakots og Eldvarnaeftirlits Hornafjarðar um eldvarnir og fræðslu til nemenda í efstu bekkjum leiksólanna. Samningurinn undirritaðu fyrir hönd leikskólanna leikskólastjórarnir Margrét Ingólfsdóttir og Snæfríður Svavarsdóttir og fyrir hönd slökkviliðsins var það Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri. Að sögn Borgþórs Freysteinssonar eldvarnareftirlitsmanns Sveitarfélagsins er samningurinn í grófum dráttum þríþættur, (1) að tryggja að eldvarnir í leikskólum verð ávallt eins og best verði á kosið, (2) að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf slökkviliðsmanna og búnað og (3) að minna foreldra og forráðamenn barna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilanna séu í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig ná má því marki. Við upphaf þessa verkefnisins gera aðilar með sér samkomulag um eldvarnir og fræðslu og að slökkviliðið afhendi ýmis gögn sem tengjast verkefninu sjálfu, krakkarnir fá með sér heim verkefnabók þar sem þau leysa ýmis verkefni með fjölskyldunni og það kemur síðan í hlut leikskólakennaranna að halda utan um verkefnabókina.</description>
Nýr þjóðgarðsvörður í Skaftafelli
      <description>Regína Hreinsdóttir landfræðingur hefur verið ráðin þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Hún tekur við af Ragnari Frank Kristjánssyni sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1999. Regína er með meistarapróf í landfræði frá Háskóla Íslands frá 2006 auk þess sem hún hefur lokið námi í kennslufræði til kennsluréttinda frá sama skóla. Regína hefur víðtæka starfsreynslu, m.a. hjá Náttúrufræðistofnun, sem yfirlandvörður í Herðubreiðarlindum og Öskju og sem framkvæmdastjóri hjá ungmennafélaginu Úlfljóti. 12 umsækjendur voru um starf þjóðgarðsvarðar. Á næsta ári mun þjóðgarðurinn Skaftafell verða hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.</description>
Landsmót skólalúðrasveita haldið á Höfn næstu helgi
      <description>Næstu helgi þ.e. helgina 12. til 14. október verður haldið landsmót skólalúðrasveita  hér á Höfn. Þá munu koma hingað um 450 börn og um 80 stjórnendur ásamt fararstjórum. Að sögns Jóhanns Moráveks skólastjóra Tónskóla Austur-Skaftafellsssýslu þá mun fyrirkomulag mótsins verða á þá leið að búnar verða til 4 lúðrasveitir með um 100 manns í hverri og ein slagverkssveit með 45 slagverksleikurum. Þessir hópar fá 3-4 lög hver og vinna með stjórnendum föstudagskvöld og allan laugardaginn. Afrakstur æfinganna verður svo í Íþróttahúsinu á Höfn sunnudaginn 14. okt. kl. 10.00 – 12.00 þar sem sveitirnar spila verkefnin sín fyrir gesti og gangandi. Einnig kemur í heimsókn til okkar stórsveit Samma sem mun spila í lok tónleikanna. Samúel J. Samúelsson básúnuleikari hefur skapað sér stórann sess í tónlistinni hér á landi og unnið þrekvirki með að útsetja fyrir stórhljómsveit – “Big band”.</description>
Bæjarstjórn ítrekar fyrri ályktanir um staðsetningu björgunarþyrlu á Hornafirði
      <description>Á fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar sem fram fór Hofgarði í Öræfum s.l. fimmtudag var gerð eftirfarandi ályktun um björgunarþyrlu: "Bæjarstjórn Hornafjarðar vill ítreka fyrri ályktanir um björgunarþyrlu og beinir þeim eindregnu tilmælum til yfirvalda að björgunarþyrla verði staðsett á Hornafirði. Hornafjarðarflugvöllur er mikilvægur hlekkur í björgunar- og öryggisþjónustu í landinu. Lendingarskilyrði eru góð og flugvöllurinn hefur gegnt mikilvægu hlutverki í björgunaraðgerðum bæði til lands og sjávar á Suður- og Austurlandi. Vegna fjarlægðar milli Hafnar og Höfuðborgarsvæðisins eru veður oft ólík á þessum tveim stöðum. Þyrlur hafa takmarkað flugþol og fljúga ekki yfir fjalllendi í slæmum veðrum og því myndi þyrla staðsett á Hornafirði veita sjófarendum við Suðurströndina og á sunnanverðum Austfjörðum aukið öryggi.</description>
Rúmlega 19 þúsund gistinætur á tjaldstæðinu í Skaftafelli
      <description>Þeir ferðaþjónustuaðilar í Sveitarfélaginu Hornafirði  sem vefurinn hefur haft samband við eru mjög ánægðir með aðsókn í sumar og allstaðar, þar sem hægt hefur verið að bæta við,  hefur gestum fjölgað og enn er nokkuð um ferðamenn ekki síst útlendinga. Gistinætur á tjaldsvæðinu í Skaftafelli voru rúmlega 19 þúsund í sumar sem er mikið meira en í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Hafdísi Roysdóttur starfsmanni í Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli. Hafdís veit ekki enn hvenær þjónustumiðstöðinni  verður lokað á þessu hausti því  ennþá eru gestkomur í þjóðgarðinn, fólk  sem kemur til að ganga um þjóðgarðinn og flestir sem vilja fá að sjá myndbandið um Skeiðarárhlaupið 1996 og það er mikið spurt um þessa mynd. Fyrir stuttu kom fjörutíu manna  hópur eldri borgara  frá Vík á leið í Þórbergssetur við í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli og fengu að horfa á myndina af Skeiðarárhlaupinu.</description>
Hyvää huomenta (góðan daginn)
      <description>Fimmtudaginn 20. september lögðu 8 nemendur í frumkvöðlafræði ásamt tveimur kennurum af stað til bæjarins Jämsä í Finnlandi. Um síðustu áramót  hófst samstarf við Jämsän seudun kolultuskeskus/ Maatalous- ja puutarhaoppilatios skólann sem er garðyrkju-, landbúnaðar- og umhverfisskóli. Heimsóknin til Finnlands er liður í samstarfsverkefninu. Jämsä er lítill bær 250 kílómetra fyrir norðan Helskinki og má með sanni segja að við höfum verið út í sveit enda var stór hluti tímans ytra nýttur til að kynna okkur hvernig Finnarnir umgangast náttúruna og nýta hana. Við gengum mikið um skóga enda er töluvert af trjám í Finnlandi. Einnig er mikið af stöðuvötnum og hafa yfir 100.000 vötn fengið nafn. Á öllum gönguleiðum sem við fórum eru með stuttu millibili eldstæði og viðargeymsla þar sem leyfilegt er að er að taka við og kveikja eld til að hita ketilkaffi, elda mat eða þá bara til að hlýja sér.</description>
Ný sundlaug fyrir jólin 2008
      <description>Í morgun voru  undirritaðir samningar milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar  og verktaka við sundlaugarbygginguna. Með þessum undirskriftum er búið að ganga frá samningum við píparann Braga Karlsson, Rafhorn og jarðverktakann Rósaberg ehf. en eftir er að ganga frá undirskriftum við Gunnar Gunnlaugsson verktaka sem sér um uppsteypu og frágang úti og inni í húsinu en Gunnar er ekki kominn á staðinn vegna verkefnis annarsstaðar. Stefnt er á að framkvæmdir hefjist 5.nóv.nk. og áætluð verklok eru 1.des 2008.</description>
Slökkviliðin gera átak í forvörnum og fræðslu á leikskólum
      <description>Slökkvilið Hornafjarðar mun ásamt öðrum slökkviliðum um allt land hefja samstarf við leikskólana á starfssvæðum sínum um átak í eldvarnaeftirliti og fræðslu til að auka öryggi á leikskólunum og heimilum barnanna. Verkefnið er unnið í samvinnu við Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands sem leggur slökkviliðunum til fjölbreytt og vandað efni til fræðslu og eftirlits. Sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðanna í verkefninu eru slökkviálfarnir Logi og Glóð sem eru jafnframt helsta auðkenni verkefnisins. Átakið er stærsta einstaka forvarnaverkefni slökkviliðanna til þessa. Tilefni þess að ráðist var í þetta verkefni er meðal annars könnun sem sýndi að eldvörnum heimilanna er verulega áfátt og á það ekki síst við um heimili ungs fólks.</description>
Bein útsending úr fjósinu fyrir ferðamenn á Brunnhól