Í Landnemaskólanum er lögð áhersla á dýpra nám í íslensku
Nú er nýlokið námskeiðum í íslensku 1 hjá Þekkingarnetinu og luku 10 nemendur þeim áfanga og í íslensku 3 þar sem 15 nemendur luku námi. Fyrirhugað er að bjóða þeim sem lokið hafa íslensku 3 upp á nám sem hlotið hefur heitið Landnemaskólinn. Námið er einnig í boði fyrir aðra íbúa sem treysta sér til að læra á íslensku því leiðbeinendur kenna á því máli. Landnemaskólinn er sem sagt hannaður fyrir fólk af erlendum uppruna sem talar og skilur talsvert í íslensku og er tilgangur þess að auðvelda fólki að vinna og búa á Íslandi. Í Landnemaskólanum er megináhersla lögð á dýpra nám í íslensku en einnig á að auka þekkingu námsmannanna á íslensku samfélagi og atvinnulífi.
Námið fer að miklu leyti fram með umræðum og verkefnavinnu þar sem námsmenn kynna sér íslenska samfélagsgerð og hlutverk og þjónustu ýmissa stofnana svo sem heilsugæslu, skólakerfis, stéttarfélaga, útlendingastofnunar, Alþjóðahúss og fleiri stofnana. Almenn kynning á Landnemaskólanum verður í stofu 202 í FAS í Nýheimum fimmtudaginn 15. nóvember kl. 19.00.
Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að koma og kynna sér námið.





Skrifa athugasemd