Samgöngu- og viðskiptaráðherra heimsækja Hornafjörð
Á morgun miðvikudaginn 14. nóvember munu Kristján L. Möller, samgönguráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra heimsækja Hornafjörð. Þá funda þeir með bæjarstjórn og um kvöldið verður opinn fundur í Nýheimum kl. 20:00. Á þann fund eru allir íbúar sveitarfélagsins velkomnir til þess að ræða málin við ráðherrana. Samgöngumál eru Hornfirðingum, eins og öllum Íslendingum, ofarlega í huga. Nýtt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót hefur lengi verið í umræðunni. Núverandir vegstæði og brúin yfir Hornafjarðarfljót er fyrir löngu síðan komin á síðasta snúning og mikilvægt er að framkvæmdi við nýtt vegstæði og nýja brú hefjist sem fyrst. Nú liggur niðurstaða Vegagerðarinnar fyrir og olli hún bæjarstjórn Hornafjarðar töluverðum vonbrigðum þar sem Vegagerðin er ekki sammála bæjarstjórn um það hvaða leið beri að fara. Nú er tækifæri fyrir íbúana að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við ráðherrana.
Á undanförnum árum hefur mönnum einnig orðið tíðrætt um mikilvægi þess að ráðist verði í gangnagerð undir Lónsheiði. Við það myndu allir vegfarendur á þjóðvegi eitt losna við að keyra þann farartálma sem Hvalnes ? og þvottárskriður óneitanlega eru.
Nú er tækifæri til þess að ræða málin við þá sem stýra þessum málum. Samfylkingin á Hornafirði hvetur alla sem áhuga hafa á þessum málum sem öðrum til þess að fjölmenna á fundinn, hlusta á ráðherrana og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
- Samfylkingin á Hornafirði





Skrifa athugasemd