Nóvember
Swissneskur ferðalangi á Íslandi
Swissneskur ferðalangi á Íslandi
Swissneskur ferðalangi á Íslandi - ljósmynd Hlyns Pálmassonar

14.11.2007 Nóvember

Ljósmynd Hlyns Pálma -Svissneskur ferðalangi á Íslandi- komin í úrslit

Svissneskur ferðalangur á íslandi, sem er ljósmynd Hlyns Pálmassonar, komst í úrslit í Sumarsmellurinn 2007 sem er ljósmyndasamkeppni Veðurstofu Stöðvar 2 og Visir.is. Eins og sjá má á myndinni þá "ferðalangurinn" að hoppa með svissneska fánann. Hlynur stundar núna nám í ljósmyndun í Kaupmannahöfn þar sem hann býr ásamt unnustu sinni Hildi Ómarsdóttur. Fyrir þá sem ekki þekkja hann þá er hann sonur Pálma Guðmundssonar og Elínar Magnúsdóttur. Það eru ekki bara ljósmyndir sem Hlynur er að fást við, því stuttmynd hans "no name 1#" var valin til sýningar í London á stuttmyndahátíð og síðan verður hún aftur sýnd í Bandaríkjunum í desember. Hornfirðingar bíða spenntir eftir frumsýningu stuttmyndar hans "post it" sem verður sýnd verður í Nýheimum milli jóla og nýárs ásamt öðrum myndum sem Hlynur hefur gert.

Upptakan á "Post it" fór fram í sumar á Höfn og skartar hún Hornfirskum leikurum.

Fyrir þá sem vilja greiða atkvæði í "ljósmyndasamkeppninni Sumarsmellurinn 2007" (klikka hér)

Síðasti dagur til að kjósa er 20.nóvember n.k.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica