Nóvember
Dagur íslenskrar tungu 2007
Dagur íslenskrar tungu 2007
(úr myndasafni)
Mynd 3 af 6
1 2 3 4 5 6

17.11.2007 Nóvember

Þulur, sögur og leikrit í leikskólunum á degi íslenskrar tungu

Leikaskólarnir Lönguhólar og Krakkakot létu sitt ekki eftir liggja með að taka þátt í Degi íslenskrar tungu, Leikskólarnir fengu í heimsókn börnum úr 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar, sem komu og lásu fyrir þau. Lesturinn tókst vel í alla staði og var mikil kátína meðal leikskólabarna að fá krakkana úr grunnskólanum í heimsókn. Eftir að þau voru búin að lesa söfnuðust allir nemendur leikskólans saman inn í sal leikskólanna og léku leikrit fyrir hvort annað og voru með ýmsar uppákomur. Yngstu börnin á Krakkakoti stigu á sviðið og sungu lag við ljóð Jónasar Hallgrímssonar ,,buxur, vesti, brók og skór" með tilheyrandi táknum. Elstu börnin fóru með þuluna ,,hann Kalli átti káta mús" sem er ein af þulunum sem þau hafa verið að læra í Markvissri málörvun og á eftir sungu allir á Mánadeild saman lagið ,,á íslensku má alltaf finna svar" við texta Þórarins Eldjárn.

Að lokum sungu svo allir saman fullt af lögum. Þetta var vel heppnuð hátíð og allir skemmtu sér vel.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica