Nóvember
Skúta í Hornafjarðarhöfn
Skúta í Hornafjarðarhöfn
Skúta í Hornafjarðarhöfn
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

21.11.2007 Nóvember

Hollendingar sigldu stolinni skútu til Hornafjarðar

"Um er að ræða þjófnað á skútu frá Þýskalandi sem siglt var hingað til lands," segir lögreglan á Hornafirði í samtali við vísir.is en skúta hefur verið kyrrsett í Hornafjarðarhöfn. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er ekki vitað hvort hugsanlegir kaupendur séu hér á landi en tollgæslan er að skoða málið. Það er Ríkislögreglustjóri í samstarfi við Interpol sem eru með málið að sögn lögreglunnar á Hornafirði. Það voru Hollendingar sem sigldu skútunni hingað og eru þeir vanir ferjusiglarar að sögn lögreglunnar. Ekki er uppi grunur að fíkniefni séu um borð en skútan hefur verið kyrrsett og er því ekki að fara neitt. Skútan er nokkuð stór og skaut lögreglan á að hún væri um 12-13 metrar að lengd og fjórir metrar á breidd.

Smári Björgvinsson hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra kannaðist ekkert við málið þegar Vísir hafði við hann samband.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica