Nóvember
Ágústa Arnardóttir
Ágústa Arnardóttir
Ágústa Arnardóttir á sýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur

28.11.2007 Nóvember

Verður í Miðbæ með töskulínu sem hún hefur hannað og framleitt.

Á jólamarkaðinum sem verður í Miðbæ næstu helgi mun Ágústa Margrét Arnardóttir hönnuður kynna og verða með til sölu töskulínu sem hún hefur hannað og framleitt. Ágústa rekur fyrirtækið GUSTA DESIGN Ágústa útskrifaðist frá Iðnskólanum í Hafnarfirði sem stúdent af listnámsbraut, hönnunarsviði árið 2005, lærði svo skó- og fylgihlutahönnun í Istituto Europeo di Design á Ítalíu árið 2006, þar sem hún fékk hæstu mögulegu einkunn fyrir tösku- og hatta hönnun. Einnig hefur Ágústa tekið ýmis námskeið t.d í virtum skóla í London. En segir þó að flest svona hönnunarvinna komi að sjálfu sér og með mikilli æfingu, allt nám er rosalega góður grunnur en aðalatriðið er að vera alltaf að þróa sig áfram og finna leið til að útfæra hugmyndir sínar. "Nú er ég komin með grunninn og rosalega góðar vélar, þannig að nú get ég farið að gera allt sem mér dettur í hug, mér finnst sníða gerðin skemmtilegust og er með svo mikið af hugmyndum sem mig hlakkar til að fara að vinna. Þetta gerir það að verkum að ég geri aldrei margar töskur í sama sniði, heldur er alltaf að koma með eitthvað nýtt".

Þegar Ágústa kom heim frá Ítalíu settist hún að á Djúpavogi þar sem hún er með vinnustofu. Þetta er orðið alvöru fyrirtæki og mjög mikil vinna, aðalvinnan er þó samt 14 mánaða gömul dóttir Ágústu og Guðlaugs Birgissonar og eiga þau von á öðru barni í janúar.

Ágústa segir að í byrjun þessa árs hafi hún verið komin með fullt af hugmyndum bæði frá sjálfri sér og það sem hún lærði í skólanum á Ítalíu, sem hún síðan útfærði á sinn hátt. Þetta hafi síðan undið upp á sig og núna er hún komin með tvær mismunandi línur af hversdags- og spari töskum. En í hvorri línu eru nokkur mismunandi snið og stærðir og nokkrir litir. "Ég reyni eftir bestu getu að hafa sniðin þægileg, allar töskurnar eru með vasa innan í og sumar fleiri aukahólfum, einnig eru öll haldföng og ólar stækkanleg og minnkanleg eftir því hvernig sá sem ber töskuna vill hafa hana, einnig vel ég litina, hráefnið og þessháttar út frá því að töskurnar eiga að standast tímans tönn, vera klassískar og fallegar. Ég nota hágæða íslenskt hráefni eins og fiskiroð sem er mjög vinsælt og hreindýraleður sem er miklu sjaldgæfara en roðið og mjög fáir hönnuðir að vinna úr. Við erum heppin að vera með hreindýrin hér hjá okkur á Austurlandi, ég fæ húðirnar hjá veiðimönnum í kringum Hornafjörð og Djúpavog og læt svo vinna það fyrir mig hér á Íslandi, en vinnslan á íslensku hreindýraleðri er mjög spes og ólíkt öllu öðru leðri.

Í október s.l. tók Ágústa þátt í sýningu á vegum Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar voru 50 sýnendur sem dómnefnd valdi inn af mörg hundruðum hönnuða og handverksfólki. "Bara það að vera valin til þátttöku á sýningunni er gríðarleg viðurkenning fyrir utan hversu gefandi það er að taka þátt í slíkri sýningu" segir Ágústa. Í
kjölfar sýningarinnar hefur hún farið um landið og kynnt vöruna og fengið alveg rosalega góð viðbrögð frá fólki og verslunum sem vilja selja vöruna. Þess má geta að Ágústa var hönnuður vikunnar í tímaritinu Vikunni fyrir stuttu.

Nú er bara að mæta í Miðbæ um helgina og sjá hvað Ágústa hefur upp á að bjóða en hún mun vera fyrir framan hárgreiðslustofuna Jaspís þar sem varan verður einnig til sölu fram að jólum. Einnig er hægt að skoða töskurnar á www.gustadesign.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica