Fjárhagur sveitarfélagsins stendur traustum fótum
Á blogsíðu Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra kemur fram eftirfarandi undir fyrirsögninni "Miklar framkvæmdir, framsækinn verkefni og ábyrgð í rekstri", þar segir Hjalti "Á bæjarstjórnarfundi sagði ég eftirfarandi um fjárhag sveitarfélagsins: Fjárhagur sveitarfélagsins stendur traustum fótum. Bankainnistæða er drjúg og fer langt með að borga upp framkvæmdir við sundlaugina upp á 360 miljónir. Rekstrarafgangur ársins 2008 verður góður miðað við núverandi forsendur. Þær geta breyst þar sem kjarasamningar eru margir hverjir lausir og veltan í þjóðfélaginu að minka sem hefur áhrif á Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Samspil nokkura atriða gerir stöðu sveitarfélagsins eins sterka og raun ber vitni. Í fyrsta lagi hefur sveitarfélagið ekki tekið lán í fimm ár og því borgað hratt niður skuldir og lækkað þannig fjármagnskostnað. Mörg önnur sveitarfélög eru með háar skuldir og nýta mikið af sínum tekjum í afborganir sem annars gætu farið í rekstur og framkvæmdir. Það er því mikilvægt markmið að halda skuldastöðunni góðri. Í öðru lagi er skýringanna að leita í ábyrgri fjármálstjórn forstöðumanna og framkvæmdastjóra. Forstöðumenn hafa haldið áætlanir vel og eru vel meðvitaðir um mikilvægi þess að jafna út fjárhagsgetu sveitarfélagsins og metnað sinn í uppbyggingu starfseminnar. Í þriðja lagi hefur verið skorið niður í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Starfsfólki í ráðhúsinu hefur fækkað töluvert á undanförnum árum. Það þýðir að forgangsraða þarf verkefnum nokkuð stíft og vega og meta mikilvægi hvers verkefnis. Það kann í einstaka tilfellum að bitna á starfinu en heild litið yfir er ég afar sáttur með hvernig vinnan fer fram í ráðhúsinu. Í bland eru þar reynsluboltar og gemsar sem saman mynda skapandi og drífandi umhverfi. Í fjórða lagi hafa tekjur sveitarfélagsins aukist mikið, einkum úr jöfnunarsjóði. Það helgast fyrst og fremst af aukafjárveitingum ríkisins til sjóðsins í tengslum við kröfur sveitarfélaga um aukna tekjustofna til handa sveitarfélögum.
Á árinu 2006 verður framkvæmt fyrir ríflega 600 miljónir í A og B hluta. Þar er ný sundlaug stærsta einstaka verkefnið en einnig verður byggt nýtt knattspyrnuhús og hafist handa við byggingu nýrrar bryggju við Álaugarey. Árið 2008 munu nefndir fjalla um málefni fjölskyldunnar, starfsmannamál og greina húsnæðisþörf stofnana sveitarfélagsins. Þá verða tekin skref til að auka sýnileika sveitarfélagsins í dreifbýlinu og sinna betur þeim verkefnum sem kalla á. Að endingu verður aukið umtalsvert við stuðning við U.M.F. Sindra þannig að félagið getur betið sitt starfi sínu fyrir bætta lýðheilsu og skapað vettvang fyrir æskuna.
Árið 2008 mun því einkennast af miklum framkvæmdum, framsæknum verkefnum en umfram allt ábyrgð í rekstri.
- Hjalti Þór





Skrifa athugasemd