Voru þrír saman á fermingarmynd 1954 og nú 53 árum síðar
Myndakvöld hjá Skaftfellingafélaginu
Fimmtudaginn 22. nóvember hélt Skaftfellingafélagið myndakvöld með myndum frá Öræfum. Þar á meðal annars myndir frá Jakobi Guðlaugssyni í Skaftafelli, Helga Arasyni og Guðjóni Jónssyni frá Fagurhólsmýri. Einnig var boðið upp á kaffi og meðlæti í hléi. Mætingin var um 60 manns. Nokkrar myndir voru frá fermingum í Öræfum þar á meðal af fermingu 1954 og svo skemmtilegt vildi til að þeir þrír sem fermdust þá voru á kvöldinu og létu smella af sér mynd saman af og sést vel hvað þeir halda sér vel þó 53 ár séu síðan !!!!!
Skaftfellingafélagið minnir á dagskrá vetrarins.
Á sunnudag, 9. desember kl. 15:00 er aðventustund í Skaftfellingabúð með upplestri, dansi, söng, jólasvein og veitingum.
26. janúar verður blásið til þorrablóts en þar sem ekkert varð af fílaveislunni í haust þá var ákveðið halda veglegt þorrablót og er loka mynd að koma á dagskránna, auglýst síðar.
21. febrúar er næsta myndakvöld sem verður tengt brúarframkvæmdum í sýslunum.
9. mars Skaftfellingamessa.
Í apríl verður eitt kvöld notað til að rifjað upp sögu skógræktarreitsins í Heiðmörk og framkvæmdir við hann í sumar ákveðnar og svo má ekki gleyma kórnum og gönguklúbbnum (skálminu) sem er í gangi allan veturinn.




Skrifa athugasemd