Desember
Netto_Kiwanis_2
Netto_Kiwanis_2
Við afhendinguna í Netto
Mynd 1 af 3
1 2 3

19.12.2007 Desember

Jólaglaðningur frá Kiwanisklúbbnum Ós og Nettó

Félagsþjónustu Hornafjarðar barst í dag 200 þúsund kr. gjafabréf á matarúttekt í Nettó. Gefendurnir voru Kiwanisklúbburinn Ós sem gaf 150 þúsund og Nettó bætti 50 þús. við gjöf þeirra Ós-félaga. Stefán Ólafsson tók við gjafabréfinu sem Grétar Vilbergsson formaður klúbbsins afhenti og þakkaði Stefán fyrir góða gjöf og sagði að þessu yrði þessu skipt milli nokkurra heimila og yrði þetta kærkominn glaðningur fyrir jólin því í okkar litla bæjarfélagi eru vissulega til heimili sem eru hjálpar þurfi.

Meðal fjáröflunarleiða Kiwanisklúbbsins er sala á jólatrjám og er þessi gjöf ágóði hennar einnig selja þeir úrvals lakkrískonfekt framleitt hjá sælgætisgerðinni Freyju hér á Höfn.
Haukur Sveinbjörnsson sagði að öll jólatré sem seld eru hér núna væru úr skógræktinni í Haukafelli nema norðmannsþinur sem fluttur er inn frá Danmörku.
Félagar í Kiwanisklúbbnum Ós eru 19 og sá tuttugasti í þjálfun að sögn Grétars formanns.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica