Þráðlaus internetþjónusta Martölvunnar
Fyrirtækið Martölvan hefur nú hafið dreifingu á þráðlausu interneti frá Sunnuhlíð í Vestri til Almannsakarðs í austri. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Martölvunni að búið sé að tengja fyrstu notendur og að prófanir hafi farið fram úr björtustu vonum og er ekki annað að sjá en að þessi þjónusta virki mjög vel. Kerfið virkar með þeim hætti að notendur setja upp litið box með loftneti sem á að duga í flestum tilfellum en einnig er í boði búnaður sem settur er upp úti við og tekin snúra inn að boxinu. Stofngjald að sambandi er kr. 29.900 fyrir þá sem gera bindandi samning til 36 mánaða. En kr. 74.900 án bindingar WiMax endabúnaður hjá notendum verður eign Martölvunnar og ef til uppsagnar kemur er honum skilað til Martölvunnar.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefsíðu Martölvunnar (www.martolvan.is )





Skrifa athugasemd