Janúar
Birthday-twins-project
Birthday-twins-project
Þessi í hvítu treyjunni er Marie Jacqmin ( franska og enska), við hliðina á henni er Cemil Belek (tyrkneska og enska), næstur er Chiu-ling Jyi (enska og kínverska) svo kemur Annelore De Donder ( enska og ítalska) og svo neðst á myndinni er Tess Uytterhoeven (spænska og enska) Þetta er liðið sem er að vinna að þessu verkefni.

02.01.2008 Janúar

Hvernig væri líf mitt ef ég hefði fæðst á öðrum stað í heiminum?

Belgíska ríkissjónvarpið leitar nú að einstaklingum víða um heim sem eiga það sameiginlegt að hafa fæðst á sama degi. Annelore De Donder, sem starfar fyrir kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Woestijnvis ( Desert Fish), hafði samband við Hornafjörð.is og bað um að þessari frétt yrði komið á framfæri hér á Íslandi. Woestijnvis starfar eingöngu fyrir belgíska ríkissjónvarpið og hefur hlotið fjölda viðurkenninga (sjá meðfylgjandi tengla á vefsíður). Nú er verið að búa til heimildarmynd um einstaklinga fædda á eftirtöldum dögum á mismunandi stöðum í heiminum sem eiga ekkert annað sameiginlegt en að vera af sama kyni. Kalla þau þetta "Birthday twins project". Markmiðið er að safna saman breiðum hópi af einstaklingum alls staðar að úr heiminum og reyna að svara spurningunni "Hvernig væri líf mitt ef ég hefði fæðst í öðrum heimshluta?"

Þau eru að leita að einstaklingum fæddum á þessum dögum

Menn sem eru fæddir 29. apríl 1933, 18. júlí 1948, 19. júlí 1948, 20. augúst 1949, 11. febrúar 1952, 18. janúar 1956, 5. maí 1956, 27. ágúst 1958, 30. desember 1960, 24. júlí 1962, 14. janúar 1965, 27. janúar 1965, 5. október 1968, 5. febrúar 1969, 6. apríl 1969, 3. maí 1981

Konur fæddar 5. apríl 1943, 2. maí 1950, 20. júlí 1963, 24. mars 1964, 10. febrúar 1965, 26. mars 1975, 4. nóvember 1977, 27. desember 1979, 24. júlí 1982

Að sögn Annelore hafa þegar hafa fundnir þátttakendur frá eftirtöldum löndum: Níkarakva, Chile, Brasilíu, Bretlandi, Írlandi, Ítalíu, Spáni, Króatíu, Grikklandi, Tyrklandi, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Rússlandi, Georgíu, Ukraínu, Morokkó, Malí, Kamerún, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Sri Lanka, Víetnam, Singapore, Kína og Bandaríkjunum.

Annelore segir að þÞetta fær þannig fram að þegar þau hafa fundið fólk sem vill taka þátt þá er byrjað á því að hringja í viðkomandi og hann spurður ýmissa spurninga um t.d.: bernsku, fjölskyldu, áhugamál, vinnu og fleira. Þetta viðtal tekur u.þ.b. hálftíma. Út frá þessu er síðan búinn til "prófíll" sem er settur í gagnagrunn og síðan eru endanlegir þátttakendur valdir úr honum. Þeir sem eru valdir eru síðan heimsóttir af starfsfólki Woestijnvis og belgíska "afmælistvíburanum". Þeir ("tvíburarnir") eru síðan kvikmyndaðir í nokkra daga og lögð áhersla á að kynna líf og starf viðkomandi, samanborið við belgíska "tvíburann", en allt að sjálfsögðu í samvinnu við hann eða hana. Það verða ekki greidd laun fyrir þátttökuna en enginn kostnaður á að falla á viðkomandi.

Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í þessu verkefni geta haft samband við Annelore De Donder, sem er einn af framleiðendunum "Birthday twins project", í síma 0032 2 303 35 88 eða twins@docfish.be eða adedonde@woestijnvis.be

Aðrir framleiðendur þáttanna eru: Marie Jacqmin, Tess Uytterhoeven og Cemil Belek

Heimasíða framleiðanda þáttanna

Heimasíða Belgíska ríkissjónvarpsins

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica