Janúar
Sigursteinn Haukur Reynisson
Sigursteinn Haukur Reynisson
Sigursteinn Haukur Reynisson ásamt frú Vigdís Finnbogadóttir og Ástríður Magnúsdóttir (Mynd:HI)
Mynd 1 af 2
1 2

11.01.2008 Janúar

Sigursteinn hlaut styrk fyrir framúrskarandi árangur

Úthlutað var úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents við hátíðlega athöfn í Skólabæ fimmtudaginn 21. desember. Styrkinn hlaut að þessu sinni Sigursteinn Haukur Reynisson, nemandi á þriðja ári í rafmagns- og tölvuverkfræði. Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi í verkfræðideild HÍ. Sigursteinn Haukur lauk námi í rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2000 og stúdentsprófi frá Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu vorið 2004 þar sem hann var dúx skólans. Foreldrar Sigursteins Hauks eru þau Katrín Lilja Haraldsdóttir og Reynir Sigursteinsson. Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar HÍ, á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja stúdenta til náms við verkfræðideild HÍ eða til framhaldsnáms í verkfræði við annan háskóla, að loknu grunnnámi í verkfræðideild HÍ.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica